Vindur hefur áhrif á badmintonkeppnina Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 31. júlí 2012 10:00 Mynd/Valli
Þrátt fyrir að badminton sé innanhússíþrótt þurfa þeir sem keppa í henni á Ólympíuleikunum í London að reikna með meðvindi, mótvindi eða hliðarvindi í sínum viðureignum. Keppt er í Wembley Arena sem tekur mörg þúsund áhorfendur í sæti. Badmintonkeppnin er vel sótt eins og flestar aðrar greinar á leikunum og því nauðsynlegt að kveikja á loftræstingu í höllinni. „Það væri ólíft án loftræstingar," sagði Ragna eftir sigur hennar á Akvile Stapusaityte í gær. „Ég er þar að auki ekki vön því að keppa við svona aðstæður í höllum eins og þessari. En það var betra að byrja í mótvindi og þess vegna valdi ég að byrja þeim megin sem ég gerði eftir að ég vann uppkastið," sagði hún. „Mér gekk svo mjög vel í fyrstu lotunni en lenti svo í ströggli í annarri lotu því það var erfiðara að spila þeim megin. En mér fannst þó betra að vera búin að vinna eina lotu og koma mér þannig í betri stöðu í viðureigninni." Ragna segist hafa fengið að æfa í höllinni um helgina og fengið ráð frá öðrum spilurum sem kepptu þar á undan henni. En þrátt fyrir að loftkælingin væri í gangi var gríðarlega heitt í höllinni. „Það var eins gott að ég vann þetta í tveimur lotum því ég hefði aldrei haldið þriðju lotuna út," sagði hún og hló. „Ég verð því bara að taka hina í tveimur lotum líka." Ragna leikur síðari viðureign sína í F-riðli í kvöld og mætir þá Jie Yao frá Hollandi í hreinum úrslitaleik um sigur í riðlinum og sæti í 16-manna úrslitum.
Mest lesið Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Golf Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Fleiri fréttir Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Spila æfingarleik á meðan HM stendur Erfiðar aðstæður gætu hjálpað Gunnlaugi Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós „Að ganga í gegnum þetta gerði hann miklu sterkari“ Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Maður dagsins á HM: Borinn saman við Essien Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Stuðningsmenn baula á vatnspásurnar Liverpool sækir spænskan landsliðsmann Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Dagskráin í dag: Gunnlaugur Árni hefur leik á Opna bandaríska Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Alsíringum tekið opnum örmum í Kansas Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Frábær byrjun Englendinga Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Þjóðhátíðarsigur á Ísafirði Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Kristófer og Guðrún eignuðust son Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Sjá meira