Popptíví snýr aftur á skjáinn 14. ágúst 2012 13:11 Auðunn Blöndal, Sveppi og Pétur Jóhann tóku sig vel út á skjánum þegar Popptíví var sem vinsælast á fyrsta áratug þessarar aldar. Pálmi Guðmundsson segir hins vegar tímabært að leita að arftökum þessara hæfileikamanna þegar stöðin opnar á ný á fimmtudaginn.
Það var aldrei planið að láta stöðina liggja í dvala lengi og við teljum að nú sé rétta augnablikið til að opna á ný," segir Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri dagskrársviðs 365 en stöðin Popptíví verður endurvakin á fimmtudaginn næstkomandi. Popptíví leggur áherslu á efni fyrir ungu kynslóðina svo sem erlenda þætti og tónlistarmyndbönd í bland við innlenda dagskrárgerð. Pálmi vill ekki gefa of mikið upp um dagskrá stöðvarinnar en lofar ungum og ferskum andlitum á skjáinn. "Þetta verður svona síðdegis- og kvölddagskrá og leggjum við áherslu á að ná til unglinganna og allra þeirra sem telja sig enn þá vera unglinga. Erlendir sem innlendir þættir og tónlistarmyndbönd á daginn," segir Pálmi og bætir við að þau hafi fundið fyrir vöntun á markaðnum fyrir þennan aldurshóp. Popptíví hætti útsendingum árið 2005 en þá var þar að finna þætti á borð við Íslenska popplistann, Geimtíví og svo 70 mínútur. Sá síðastnefndi var einn vinsælasti unglingaþáttur seinni tíma þar sem hamborgarafrumkvöðlarnir Simmi og Jói skutust upp á stjörnuhimininn sem og Auðunn Blöndal, Sveppi og Pétur Jóhann. Spurður hvort þessa kunnu kappa megi finna á skjánum þegar Popptíví snýr aftur svarar Pálmi: "Þeir eru allir komnir í annars konar dagskrárgerð hjá fyrirtækinu svo við erum miklu frekar að leita að arftökum þessara hæfileikamanna." - áp
Mest lesið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Lífið samstarf Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ Sjá meira