Alexander Briem fær fylgd frá mömmu í meistaranám 14. ágúst 2012 19:30 Dagskrágerðarkonan Sigríður Pétursdóttir fylgir syni sínum, Alexander Briem, til London þar sem hann hefur meistaranám í kvikmyndaleik við central school of speech and drama þann 8. október. "
Það er algjör himnasæla fyrir mömmu að sjá draum rætast hjá barninu sínu sem hann hefur átt síðan hann var tveggja ára," segir Sigríður Pétursdóttir, dagskrárgerðarkona hjá Ríkisútvarpinu, sem fylgir syni sínum, hinum unga og upprennnandi leikara Alexander Briem, til London í byrjun september þar sem hann hefur meistaranám í kvikmyndaleik við hinn virta leiklistarskóla Central School of Speech and Drama. Alexander er mörgum kunnur sem Ormur Óðinsson úr kvikmyndinni Gauragangi en hann útskrifaðist af leiklistarbraut Kvikmyndaskóla Íslands vorið 2010 og freistar nú gæfunnar á breskri grundu með fjölskyldu sinni. "Þetta hefur verið draumur hjá okkur hjónunum ábyggilega í áratug. Við erum mjög hrifin af Bretlandi og höfum spaugað með að við munum búa í litlu þorpi á suðurströnd Bretlands þegar við verðum eldri og reka kaffihús. Þetta hefur Alexander hlustað á síðan hann var lítill," segir Sigríður og skellir upp úr. Alexander er aðeins tuttugu og tveggja ára og því er fremur óvenjulegt að hann hafi fengið inngöngu í meistaranám í fyrstu atrennu. "Ég sendi fyrirspurnir á þá þrjá skóla sem mig langaði í. Þeir svöruðu að ég væri kominn of langt fyrir BA miðað við reynslu mína og hvöttu mig til að sækja um meistaranám. Mér fannst síðan sniðugast að sækja um kvikmyndaleik því ég hafði verið að læra slíkt," segir hann um námið sem nær yfir eitt ár. "Við vinnum innan um og fyrir framan myndavélina en samt þannig að það geti nýst okkur á sviði." Sigríður sinnir dagskrárgerð fyrir Djöflaeyjuna og Kviku í bresku höfuðborginni. "Ég gat tæknilega séð prófað þetta út af vinnunni og þá ákvað Alexander að sækja um úti og allt í einu var þetta orðið tækifæri fyrir okkur öll," segir hún. Henni þykir gott að geta veitt Alexander stuðning í náminu og hann tekur undir að það verði gott að geta leitað til sinna nánustu. Hann segir þó framhaldið óráðið. "Ég veit að umboðsmenn skoða mann við útskrift og hvernig allur sá djass er en það fer bara eftir verkefnum hvort ég verð áfram úti eða kem heim," segir hann og er í óða önn að pakka búslóðinni og undirbúa myndband við nýtt lag sitt, Love With You, sem hann gerði með tónlistarmanninum Baarregaard og fer í útvarpsspilun í vikunni.
Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Fleiri fréttir Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Sjá meira