Lífið

Tárfelldi í viðtali hjá Opruh

Rihanna ræddi við Opruh um það þegar Chris Brown réðist á hana.
Rihanna ræddi við Opruh um það þegar Chris Brown réðist á hana. nordicphotos/getty
Rihanna tárfelldi þegar sjónvarpskonan Oprah spurði hana út í líkamsárás Chris Brown í viðtalsþætti sem sýndur verður í lok vikunnar.

Rihanna var gestur í sjónvarpsþætti Opruh Winfrey fyrir skömmu. Söngkonan ræddi þar meðal annars samband þeirra Chris Brown söngvara og brotnaði saman í kjölfarið. Parið fyrrverandi heldur þó enn sambandi og þá einkum í gegnum Twitter-samskiptaforritið og velta nú margir vöngum yfir því hvort parið taki saman aftur. Rihanna og Brown enduðu samband sitt árið 2009 eftir að hann réðst á hana og veitti henni slæma áverka.

 

"Það var skömmustulegt og niðurlægjandi. Ég missi minn besta vin og ég var full af reiði. Þetta var myrkur tími," sagði söngkonan um atvikið og brast svo í grát. Mikið var fjallað um samband þeirra í fjölmiðlum í kjölfar árásarinnar og átti Rihanna að eigin sögn erfitt uppdráttar í langan tíma á eftir.

 

Rihanna og Brown voru bæði stödd í Cannes fyrr í mánuðinum og áttu að hafa eytt kvöldstund saman þrátt fyrir að Brown væri þar í fríi með núverandi kærustu sinni. Stuttu áður höfðu ljósmyndarar náð myndum af Brown þar sem hann skemmti sér með hópi fáklæddra stúlkna og lét sig engu skipta þó kærasta hans sæti þar hjá. Slúðurmiðlar telja að samband hans og Karrueche Tran muni fljótt líða undir lok og óttast fólk að Rihanna muni þá taka aftur við kærastanum fyrrverandi þrátt fyrir að ekki hafi mátt votta fyrir iðrun í orðum hans og gjörðum.

Viðtalið við Rihönnu verður frumsýnt á OWN-sjónvarpsstöðinni þann 19. ágúst næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.