Sport

Glæsilegur sigur Rögnu | Myndir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Ragna Ingólfsdóttir mætti í kvöld Akvile Stapusaityte frá Litháen í einliðaleik kvenna í badmintonkeppni Ólympíuleikanna og hafði sigur úr býtum í tveimur lotum.

Ragna varð þar með fyrst Íslendinga til að vinna badmintonviðureign á Ólympíuleikum en hún gerði það með glæsibrag.

Annað kvöld mætir hún Jie Yao frá Hollandi í hreinni úrslitaviðureign um hvor þeirra kemst áfram í 16-manna úrslitin.

Valgarður Gíslason, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var í höllinni og tók þessar myndir.

Mynd/Valli



Fleiri fréttir

Sjá meira


×