Sport

Þormóður mætir Ameríkumeistaranum í júdó

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Silva, í hvítu, tekur á andstæðingi á HM í fyrra.
Silva, í hvítu, tekur á andstæðingi á HM í fyrra. Nordic Photos / Getty Images
Þormóður Jónsson drógst gegn gríðarlega sterkum andstæðingi í fyrstu umferð í sínum flokki á Ólympíuleikunum í Lundúnum.

Hann mætir Brasilíumanninum Rafael Silva í 32-manna úrslitum í flokki 100+ kg en keppt er með útsláttarfyrirkomulagi. Keppt verður í flokkinum þann 3. ágúst næstkomandi.

Silva er 25 ára gamall og í þriðja sæti heimslistans. Hann varð Ameríkumeistari í júdó á þessu ári og hefur unnið til verðlauna á mörgum alþjóðlegum mótum. Þetta eru hans fyrstu Ólympíuleikar.

Silva náði sér ekki á strik á heimsmeistaramótinu í júdó í fyrra en hafnaði í fimmta sæti árið 2010.

Þormóður er í 58. sæti heimslistans en hann komst í 16-manna úrslit á Ólympíuleikunum í Peking og var aðeins hársbreidd frá því að komast áfram í næstu umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×