Sport

Hrafnhildur datt og missir af fyrstu greininni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Mynd/Eyþór
Hrafnhildur Lúthersdóttir keppir ekki í 100 m bringusundi eins og áætlað var þar sem hún er meidd á olnboga. Enn er áætlað að hún keppi í 200 m bringusundi og 4x100 m fjórsundi.

Hrafnhildur varð fyrir því óláni að detta á dögunum og slasast á olnboga. Því var ákveðið að gefa meiðslunum tíma til að jafna sig og undirbýr hún sig nú fyrir hinar tvær greinarnar.

Keppni í 100 m bringusundi fer fram á sunnudaginn en Hrafnhildur mun hefja keppni í leikunum þegar undanrásir í 200 m bringusundi fara fram að morgni miðvikudagsins 1. ágúst. Keppni í fjórsundi fer svo fram 3. ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×