Ásgeir: Ég var ferlega stressaður Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 28. júlí 2012 14:00 Ásgeir Sigurgeirsson Mynd/Valli
Ásgeir Sigurgeirsson var vitanlega afar ánægður með árangur dagsins á Ólympíuleikunum en hann hafnaði í fjórtánda sæti í keppni í skotfimi í dag. Keppt var með loftskammbyssu af tíu metra færi og fékk Ásgeir 580 stig af 600 mögulegum og jafnaði þar með sinn besta árangur á alþjóðlegu móti. Hann var aðeins þremur stigum frá því að komast áfram í átta manna úrslitin. „Þetta var samkvæmt mínum allra björtustu vonum og ekki annað hægt en að vera ánægður með þetta," sagði Ásgeir. „Auðvitað hefði verið gaman að fara áfram í átta manna úrslit en ég er enn að safna reynslu." Ásgeiri gekk vel í dag. Hann sýndi stöðugleika og skoraði hátt í hverri umferð. En hann viðurkennir að þetta hefði reynt á taugarnar. „Ég var ferlega stressaður í öllum skotunum. En ég vissi að það væri að ganga vel þannig að ég róaði mig niður og tók eitt skot í einu." „Það er erfiðara að keppa á Ólympíuleikum en öðrum alþjóðlegum stórmótum. Hér eru miklu fleiri áhorfendur og mun fleiri Íslendingar sem koma bara í þeim tilgangi að sjá mig. Þá gildir bara að skrúfa sig dýpra inn í eigin heim og halda bara áfram." „Ég er afar sáttur við fjórtánda sætið á Ólympíuleikum gegn atvinnumönnum í greininni. Ég er rétt að byrja og á minnst tíu ár eftir ef ég hef úthald í þetta. Það eru bjartir tímar fram undan."
Tengdar fréttir Ásgeir átti frábæran dag og var hársbreidd frá úrslitum Ásgeir Sigurgeirsson, skotmaður úr SR, náði frábærum árangri á Ólympíuleikunum í Lundúnum í dag og var ekki langt frá því að komast áfram í átta manna úrslit. 28. júlí 2012 12:51 Ásgeir: Fórnaði glaður sumarfríinu Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Skotfimikappinn Ásgeir Sigurgeirsson er næstur í röðinni en hann keppir í loftskammbyssu af 10 m færi í dag. 28. júlí 2012 09:00 Mest lesið Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Golf Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Fleiri fréttir Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Spila æfingarleik á meðan HM stendur Erfiðar aðstæður gætu hjálpað Gunnlaugi Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós „Að ganga í gegnum þetta gerði hann miklu sterkari“ Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Maður dagsins á HM: Borinn saman við Essien Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Stuðningsmenn baula á vatnspásurnar Liverpool sækir spænskan landsliðsmann Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Dagskráin í dag: Gunnlaugur Árni hefur leik á Opna bandaríska Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Alsíringum tekið opnum örmum í Kansas Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Frábær byrjun Englendinga Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Þjóðhátíðarsigur á Ísafirði Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Sjá meira
Ásgeir átti frábæran dag og var hársbreidd frá úrslitum Ásgeir Sigurgeirsson, skotmaður úr SR, náði frábærum árangri á Ólympíuleikunum í Lundúnum í dag og var ekki langt frá því að komast áfram í átta manna úrslit. 28. júlí 2012 12:51
Ásgeir: Fórnaði glaður sumarfríinu Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Skotfimikappinn Ásgeir Sigurgeirsson er næstur í röðinni en hann keppir í loftskammbyssu af 10 m færi í dag. 28. júlí 2012 09:00