Kynt undir ástareldinum 17. ágúst 2012 00:01 Par í aftursætinu að kúra.
Sæl og takk fyrir þína frábæru pistla í Fréttablaðinu. Ég er í svolítið skrítinni aðstöðu og langaði að leita ráða hjá þér. Ég er búin að vera í sambúð í tólf ár og það gengur vel fyrir utan eitt atriði; mér finnst maðurinn minn sætur, skemmtilegur og flottur og hef lítinn áhuga á öðrum mönnum, en mér finnst hann ekki lengur „sexí" og finn ekki fyrir löngun til að sofa hjá honum. Hann vinnur mikið og hreyfir sig lítið og það er líklega ástæðan. Hvað ráðleggur þú mér í þessari aðstöðu? Ég vil byrja á því að þakka þér fyrir hólið. Það er engin lygi að sambönd eru stöðug vinna en þó það sé vinna þarf hún ekki að vera leiðinleg. Það eru margir þættir sem hafa áhrif á hamingju innan sambands og á kynlífið. Ég ætla að fá að draga þá ályktun að ef maðurinn vinnur mikið þá hafi hann minni tíma til að sinna sér og sambandinu. Samkvæmt rannsóknum hafa gæði sambands mikil áhrif á kynlöngun kvenna svo ef hann gefur sér ekki tíma til að sinna sambandinu þá er ekki ósennilegt að þú sért ekki í stuði. Það þarf að nostra við rómantíkina svo erótíkin geti dafnað. Þú minnist samt ekki á það hvort hann langi til að sofa hjá þér? Stundum festast sambönd í því að annar aðili eigi alltaf frumkvæði að kynlífi og þegar viðkomandi hættir því þá gerist ekki neitt. Ég velti því einnig fyrir mér hvort hann hafi bætt á sig og er líkamlega og andlega útkeyrður eftir mikla vinnu. Líkamsímynd getur haft áhrif á kynlöngun beggja og því er spurning hvort hann þurfi að minnka við sig vinnu til þess að geta fengið útrás fyrir uppsafnaðri streitu og sinnt sér, og þér, betur. Kynlöngun og aðlöðun geta verið eins og rússíbani sem fer upp og niður og stundum ertu í stuði og stundum ekki. Oftar en ekki spila margvíslegir þættir inn í, líkt og þreyta, streita, tími og ánægja innan sambands. Við getum ekki breytt öðru fólki en við getum breytt okkur sjálfum. Þú ættir því kannski að spyrja sjálfa þig að því hvort þér finnist þú vera sexí og hvort þig langi til að stunda kynlíf. Prófaðu að brjóta upp hversdaginn og fara á stefnumót með makanum, helst í nýju umhverfi, og athugaðu hvort þið getið talað saman og kynt undir ástareldinum.
Mest lesið Var atvinnulaus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók ákvörðun sem breytti öllu Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Fleiri fréttir Var atvinnulaus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók ákvörðun sem breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi Sjá meira