Reynslubolti formaður dómnefndar á RIFF 10. ágúst 2012 07:30 Geoffrey Gilmore, stjórnandi Tribeca-kvikmyndahátíðarinnar, verður formaður dómnefndar á RIFF, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Nordicphotos/getty „
Við erum í skýjunum að fá svona reynslubolta til liðs við okkur í ár,“ segir Hrönn Marínósdóttir hjá Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, RIFF, en formaður dómnefndar á hátíðinni í ár verður Geoffrey Gilmore, stjórnandi Tribeca-hátíðarinnar. Gilmore er virt nafn innan kvikmyndaiðnaðarins en hann stjórnaði Sundance-hátíðinni í 19 ár áður en hann hóf störf hjá Tribeca fyrir þremur árum síðan. Sundance er ein stærsta óháða kvikmyndahátíðin í Bandaríkjunum og segir Hrönn það mikils virði að fá að kynna Gilmore fyrir því sem er gerast kvikmyndamenningu hér á landi. Hann er einnig kennari við kvikmyndadeild UCLA-háskólans í Los Angeles og hefur verið í dómnefnd á kvikmyndahátíðum um allan heim. „Það verður mjög gaman að taka á móti honum og kynna hann fyrir landi og þjóð. Þetta snýst allt um að búa til tengslanet fyrir áframhaldandi samstarf og er mikið tækifæri fyrir þá sem að hátíðinni koma,“ segir Hrönn og fullyrðir að Gilmore hafi ekki tekið langan tíma til umhugsunar eftir að RIFF hafði samband. „Hann stökk á tækifærið og er mjög spenntur að koma.“ Í ár eru það 12 myndir sem keppast um aðalverðlaun hátíðarinnar, gullna lundann, en RIFF fer fram dagana 27. september til 7. október næstkomandi. Þetta er í níunda sinn sem hátíðin fer fram en ásamt Gilmore verða tveir aðrir aðilar í dómnefnd sem ekki er búið að staðfesta enn þá en undirbúningur fyrir RIFF er í fullum gangi. -áp
Mest lesið Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Lífið Auður segir skilið við Gímaldið Menning Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Gagnrýni Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu Lífið Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Lífið Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Fleiri fréttir Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn Sjá meira