Icesave er á leiðinni fyrir EFTA-dómstól 22. september 2011 06:15
ESA, eftirlitsstofnun EFTA, mun ekki bíða eftir uppgjöri þrotabús Landsbankans heldur fara með Icesave-málið fyrir EFTA-dómstólinn, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Trygve Mellvang-Berg, upplýsingafulltrúi ESA, vildi ekki tjá sig um málsmeðferðina við Fréttablaðið. Hann staðfesti þó að stofnunin hefði gefið íslenskum stjórnvöldum frest til mánaðamóta til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur sagt að endurheimtur úr búi bankans hafi efnisleg áhrif í málinu. ESA lítur ekki þannig á málið, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Stofnunin telur að íslensk stjórnvöld beri ábyrgð á greiðslu lágmarkstryggingar, rúmlega 20 þúsund evra á hvern innstæðueiganda. Íslensk stjórnvöld hafi lýst því yfir að fé fáist upp í lágmarkstryggingarnar og þeirra sé að greiða það fé. Þegar það verði gert verði fallið frá dómsmálinu. Lárus Blöndal, hæstaréttarlögmaður sem átti sæti í samninganefnd Íslands í viðræðum við Breta og Hollendinga, segir að greiðslur úr þrotabúi Landsbankans hefjist væntanlega í næsta mánuði, staðfesti Hæstiréttur dóm héraðsdóms um gildi neyðarlaganna. Gert er ráð fyrir að dómur gangi á næstu vikum. Verði þetta niðurstaða Hæstaréttar má gera ráð fyrir að greiddir verði út um 400 milljarðar til forgangskröfuhafa og af þeim gangi um 200 milljarðar til greiðslu á lágmarksinnistæðum vegna Icesave. Eftir standa þá um 475 milljarðar af fjárhæð lágmarkstryggingarinnar. Lárus segir að verði skoðun ESA staðfest, um að Íslendingum hafi borið að tryggja lágmarksinnstæður á Icesave-reikningum, muni Bretar og Hollendingar væntanlega krefjast vaxta á þá fjárhæð sem þeir greiddu út á árinu 2008, eins og þeir hafi gert til þessa. Upphaflegu Icesave-samningarnir gerðu ráð fyrir 5,55 prósenta vöxtum, en síðari samningar 2,57 prósenta vöxtum. Lárus tekur fram að um vangaveltur um óorðna hluti sé að ræða, en ef dómstóllinn komist að þeirri niðurstöðu að um mismunun hafi verið að ræða sé mögulegt að Bretar og Hollendingar geri þá kröfu að Íslendingum hafi borið að tryggja allar innstæður að fullu eins og gert var í íslenskum útibúum Landsbankans en ekki einungis lágmarkstrygginguna, eða 1.150 milljarða í stað 675 milljarða. Þá yrði vaxtakrafa þeirra væntanlega af þeirri upphæð. - kóp
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira