Hafa ekkert greitt í 22 ár 6. maí 2011 05:00 Eigendur flugskýla við Reykjavíkurflugvöll hafa ekki þurft að greiða gatnagerðargjöld frá 1989. Í staðinn áttu þeir að greiða fyrir kostnað við lagfæringu á gömlum lögnum. Fréttablaðið/GVA
Eigendur flugskýla við Reykjavíkurflugvöll í Vatnsmýri hafa ekki þurft að greiða gatnagerðargjöld síðan árið 1989. Samkvæmt samþykkt frá Borgarráði Reykjavíkur frá 1. ágúst það ár skulu eigendur hins vegar þess í stað greiða kostnað við lagfæringar eldri lagna og eftir atvikum lagningu nýrra holræsa og brunna. Skólpblandað vatn tók að flæða upp úr brunni á svæðinu við flugvöllinn í vikunni. Fráveitulögn fyrir framan flugskýli 23 nær ekki að anna fráveituvatni frá aðliggjandi lögnum sem gerir það að verkum að skólp flæðir úr brunni við flugskýli 21. Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær eru þeir sem eiga aðild að þeirri lögn sem þarfnast lagfæringar á svæðinu Fluggarðar – Lóðarfélag, Flugfélag Íslands og Skeljungur hf. Rekstraraðilar hafa vísað ábyrgðinni til Reykjavíkurborgar hingað til. Rósa Magnúsdóttir, deildarstjóri hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, segir að síðan 2008 hafi engar kvartanir borist og því hafi yfirvöld talið að eigendur hefðu aðhafst í málinu. Hinn 5. apríl síðastliðinn kom þó í ljós að svo var ekki, þar sem kvörtun vegna skólpsins barst eftirlitinu að nýju. Það sé hins vegar ljóst að ábyrgð á viðhaldi og viðgerðum lagna á svæðinu liggi hjá eigendum, í ljósi samþykktar borgarráðs frá árinu 1989. „Við höfum þetta í höndunum og það hefur ekkert komið fram sem fellir þessa samþykkt úr gildi,“ segir Rósa. Ekki náðist í Ágúst Jónsson, framkvæmdastjóra eignasviðs Reykjavíkurborgar, í gær. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Erlent Fleiri fréttir Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin Niceair aflýsir jómfrúarfluginu „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Sjá meira