Innlent

Yfirvöld fréttu fyrst af skólpinu árið 2006

Skólp hefur nú flætt yfir garða og götur á flugvallarsvæðinu í Vatnsmýri eftir leysingarnar í vikunni. fréttablaðið/gva
Skólp hefur nú flætt yfir garða og götur á flugvallarsvæðinu í Vatnsmýri eftir leysingarnar í vikunni. fréttablaðið/gva
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur ítrekað farið fram á lagfæringu lagna á Fluggörðum á Reykjavíkurflugvelli. Þetta kemur fram í bréfi Heilbrigðiseftirlitsins til Jóns Baldvins Pálssonar flugvallarstjóra, sem dagsett er 2. maí síðastliðinn.

Fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá því á þriðjudag að skólp flæddi um flugbrautir í Vatnsmýrinni og út á götur vegna ónýtra lagna á svæðinu. Hefur þetta gerst af og til síðan árið 2006. Ekki liggur ljóst fyrir hver ber ábyrgð á skólplögnum á flugvallarsvæðinu. Í bréfi Heilbrigðiseftirlitsins kemur þó fram að í úttekt Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hinn 21. maí árið 2007 hafi komið í ljós að fráveitulögnin framan við flugskýli 23 annaði ekki flæði frá aðliggjandi lögnum. Þeir sem eiga aðild að lögninni eru Fluggarðar – Lóðafélag, Flugfélag Íslands og Skeljungur hf. Ábyrgð var sögð í höndum rekstraraðila á flugvallarsvæðinu, en ekki OR.

Jón Baldvin flugvallarstjóri vísar þessu á bug og segir ábyrgðina liggja hjá Reykjavíkurborg. „Þessum lóðum er úthlutað af borginni og við erum ekki í neinu forsvari fyrir það,“ segir Jón. „Við erum búin að gera það sem við getum í þessu máli og ég vísa þessu alfarið á Reykjavíkurborg.“

Kristín Soffía Jónsdóttir, formaður heilbrigðisnefndar Reykjavíkur, segir málið fyrst hafa komið á borð eftirlitsins í september árið 2006. Þá hafi niðurstaðan verið að eigendur flugskýla á Fluggörðum greiddu sjálfir kostnað af endurnýjun og nýlagningu holræsa á lóð sinni. OR teldi sig aðeins eiga eitt ræsi á lóðinni og að gatnagerðargjöld yrðu jafnframt felld niður.

„[Fluggarðar – Lóðafélag, Skeljungur og Flugfélag Íslands] hafa ekki getað komið sér saman um eðlilegt viðhald og lagfæringar sem þörf er á til að leysa þetta vandamál,“ segir Kristín. Þar sem eigendur hafi ekki brugðist við hafi árið 2008 verið ákveðið að bjóða út verkið og láta vinna það á kostnað eigenda. Erfiðleikar í útboði leiddu til þess að enn hefur ekki verið farið í það verk. Kristín segir að þar sem engar kvartanir hafi borist fyrr en nú hafi verið talið að málið væri í eðlilegum farvegi hjá eigendum.

„Næstu skref eru að funda með eigendum og setja málið í ferli aftur,“ segir hún. Boðað hefur verið til fundar hinn 24. maí næstkomandi.

sunna@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×