Leikskólakennarar fara fram á 30 þúsund krónur 15. ágúst 2011 18:20
Launaleiðréttingin sem leikskólakennarar krefjast í yfirstandandi kjaraviðræðum er um þrjátíu þúsund krónur. Stéttin er klár í verkfall ef samningar nást ekki fyrir næsta mánudag. Samningafundur í kjaradeilu leikskólakennara og sveitafélaga, sem stóð yfir í einn og hálfan tíma í morgun, bar engan árangur. Ekki hafði verið fundað í deilunni síðan á mánudag. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar en að öllu óbreyttu leggja leikskólakennarar niður vinnu eftir viku. Haraldur Freyr Gíslason, formaður félags leikskólakennara, sem hefur hingað til verið bjartsýnn í samningaferlinu, segir stéttina nú búa sig undir verkfall. Grunnlaun leikskólakennara eru 247 þúsund krónur á mánuði fyrir skatta en samninganefnd leikskólakennara fer fram á um 12% launahækkun í samræmi við aðra samninga sem hafa verið gerðir nýlega, auk 11 % launahækkunar umfram það. „Það er ekkert sem réttlætir það að leikskólakennarar séu 25% á eftir viðmiðunarstéttum, eins og t.d. grunnskólakennurum, sem verða seint taldir hálaunastétt í okkar þjóðfélagi." segir Haraldur, „Við erum að fara í gegnum sama nám og það eiga að vera sömu laun fyrir sömu menntun. Maður á ekki að fá minni laun fyrir að kenna minna fólki." Ef samninganefndin nær sínu fram hækka grunnlaunin í 307 þúsund krónur fyrir skatta, eða um 60 þúsund krónur á næstu þremur árum. Þegar skattar og launatengd gjöld hafa verið dregin frá sitja þó einungis eftir 30 þúsund krónur í vösum kennara. Haraldur segir kjaraviðræður stranda á 11% launaleiðréttingunni, sem hljóði upp á 15 þúsund krónur eftir skatt. Haraldur segir leikskólakennara standa heilshugar að baki samninganefndinni. Stéttin geti staðið undir löngu verkfalli. „Það er mikill kraftur í stéttinni og þeir eru klárir."
Mest lesið „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Innlent Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Erlent Segir nýtt að makinn sé tekinn á beinið Innlent Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Erlent Hlýnandi veður og gæti farið í tuttugu stig á morgun Veður Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum Innlent Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Innlent Fleiri fréttir Segir nýtt að makinn sé tekinn á beinið Áformin séu það eina í stöðunni vegna neyðarástands Veiðigjöldin afgreidd í nefnd og njósnarar buðu Sjóvá þjónustu sína Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Sjá meira