Innlent

Tvö þúsund hafa fengið endurhæfingu

Þeim fjölgar stöðugt sem fá endurhæfingu hjá VIRK. myndin er úr safni
Þeim fjölgar stöðugt sem fá endurhæfingu hjá VIRK. myndin er úr safni
Tvö þúsund manns höfðu um síðustu mánaðamót leitað til Starfsendurhæfingarsjóðs, VIRKS, frá því að ráðgjafar á vegum sjóðsins hófu að veita markvissa þjónustu haustið 2009.

Samið var um Starfsendurhæfingarsjóð í kjarasamningum árið 2008 en markmiðið með starfseminni er að hjálpa einstaklingum sem eru með skerta starfsgetu vegna heilsubrests að komast sem fyrst til vinnu á ný. Það er mat aðstandenda sjóðsins að starfsemin hafi skilað miklum árangri.

Starfsendurhæfingarsjóður fékk í fyrra 600 milljónir króna til umráða, að sögn Vigdísar Jónsdóttur, framkvæmdastjóra sjóðsins. ,,Fjármagnið sem við fáum eru kjarasamningsbundin gjöld frá atvinnurekendum sem eru 0,13 prósent af heildarlaunum," greinir Vigdís frá.

Hún segir starfsemi sjóðsins kynnta á vegum stéttarfélaga og einnig innan fyrirtækja. ,,Læknar vísa einnig til okkar. Þeim fjölgar stöðugt sem fá vitneskju um þá aðstoð sem þeir eiga rétt á."

Ráðgjöfin sem veitt er fer fram í samvinnu við stéttarfélög um allt land og eru ráðgjafarnir staðsettir hjá félögunum. ,,Þeir leggja sig fram um að auka virkni og getu einstaklinga í samvinnu við þá sjálfa og ýmsa sérfræðinga eftir þörfum og aðstæðum hverju sinni. Ef einstaklingur þarf meiri aðstoð til að komast aftur í vinnu en ráðgjafi getur veitt getur hann vísað á úrræði eins og sálfræðiþjónustu, heilsueflingu eða námskeið svo dæmi séu tekin. Þessi úrræði eru fjármögnuð af Starfsendurhæfingarsjóði. Áður en ákvörðun er tekin um kaup á úrræðum er staða og þörf einstaklingsins fyrir hana metin," segir Vigdís.

Flestir þeirra sem hafa komið til ráðgjafa Starfsendurhæfingarsjóðs, eða um 64 prósent, eru á launum í veikindum eða á dagpeningum hjá sjúkrasjóðum stéttarfélaga. Um 17 prósent eru á endurhæfingar- eða örorkulífeyri og um 8 prósent eru á atvinnuleysisbótum.

Algengustu ástæður skertrar starfsgetu hjá þeim einstaklingum sem koma til Starfsendurhæfingarsjóðs eru heilsubrestur af andlegum toga og stoðkerfisvandamál, að því er Vigdís greinir frá.

ibs@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×