Íslenski boltinn

Guðjón: Var kominn heim á sama tíma í fyrra

Stefán Árni Pálsson á Laugardalsvelli skrifar
„Mér líður virkilega vel núna,“ sagði Guðjón Baldvinsson, leikmaður KR, rétt eftir að liðið varð bikarmeistari í Valitor-bikarnum. KR bar sigur úr býtum, 2-0, gegn baráttuglöðum Þórsurum á Laugardalsvellinum í dag.

„Við vorum arfaslakir í fyrri hálfleiknum og áttum hreinlega ekki skilið að vera yfir í hálfleik, en svona er fótboltinn“.

„Það stendur uppúr að hafa náð að klára leikinn einum færri og skora fínt mark. Við vorum heppnir í dag og það hefur fylgt okkur í sumar“.

„Fyrir ári síðan var ég komin heim til mín á þessum tíma og því er ég sáttur. Við ætluðum okkur þennan titil og það er það eina sem skiptir máli, ekki hversu fallegt það var“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×