Gagnrýnir rammaáætlun 26. mars 2010 04:15 Mat á virkjun jarðvarma við Trölladyngju er að finna í öðrum áfanga rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Sigmundur Einarsson jarðfræðingur gagnrýnir mjög vinnuna.
Sigmundur Einarsson jarðfræðingur gerir alvarlegar athugasemdir við rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma, en niðurstöður annars áfanga voru kynntar á dögunum. Þar eru mögulegir virkjunarstaðir metnir og þeim gefin einkunn, meðal annars eftir náttúrufari. Sigmundur segir, í grein á Eyjunni, að ranglega hafi verið staðið að vinnunni. Augljósir gallar hafi verið á mati náttúruverðmæta. Flest möguleg náttúru- og menningarverðmæti séu dregin saman í einn heildarlista og hverjum einstökum þætti síðan gefið tiltekið vægi. Jarðmyndanir og vatnafar séu metin á 25 prósent, lífverur 20 prósent og menningarminjar 10 prósent, svo eitthvað sé nefnt. „Síðan eru allir mögulegir þættir metnir fyrir hvert svæði, allt lagt saman og út fæst einkunn. Þessi einkunn verður há þegar margir þættir fá háa einkunn. Svæði getur á sama hátt fengið lága einkunn ef suma þætti listans vantar alveg, jafnvel þótt þeir þættir sem eru til staðar fái hæstu mögulegu einkunn.“ Við þessa aðferð, segir Sigmundur, fá svæði þar sem landnám er skammt á veg komið sjálfkrafa lága einkunn. Surtsey fengi að líkindum falleinkunn og Geysissvæðið einnig, þar sem þar er fátt annað markvert en hverir. Sigmundur gerir einnig athugasemdir við að allir nefndarmenn hafi greitt leynilega atkvæði um verðmæti náttúrufyrirbæra, jafnvel þótt þau lægju utan sérsviðs þeirra. Þetta sé vafasamt og hæpið að standist „almennar siðareglur í vísindum“. Þá sé svæðum á köflum skipt upp á óeðlilegan máta; Torfajökulssvæðið sé metið sem ein heild, en Krýsuvíkursvæði í fjórum misstórum svæðum. „Þetta lítur nánast út eins og úrvinnslan hafi verið sveigð að fyrirfram ákveðinni niðurstöðu til að slá skjaldborg um svæðin á hálendinu og fórna svæðum á borð við Reykjanesskaga og Hengli á móti.“ Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir bagalegt ef aðferðafræðin er gagnrýnd. Hún bendir þó á að áfanginn sé í umsagnarferli og allir geti gert athugasemdir við vinnuna til 19. apríl. „Sigmundur hlýtur að gera athugasemdir og þær verða síðan skoðaðar eins og aðrar.“ Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir sjónarmið Sigmundar áhugaverð. Hún segir mjög mikilvægt að sátt náist um rammaáætlunina. „Rammaáætlun hefur verið markmið náttúruverndarsinna um mjög langt skeið. Það væri mikilvægt fyrir íslenska náttúru að ná sátt um hana.“ kolbeinn@frettabladid.is sigmundur einarsson katrín júlíusdóttir svandís svavarsdóttir
Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Erlent Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Innlent Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Innlent Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Erlent Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Innlent Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Innlent Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Innlent Fleiri fréttir Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Bruni í Bjarmalandi: „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Umdeild handtaka í Reykjanesbæ og álit ráðherra á úrslitum kosninganna „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Enn varað við umferðartöfum sökum framkvæmda á Hringvegi Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap Sjá meira