Ég var Björgólfur míns tíma 17. september 2010 14:00 Ármann setur sig í spor útrásarvíkinga í vinjettunum enda segist hafi verið langt á undan sinni samtíð í viðskiptum. „
Ég upplifði það náttúrlega á sínum tíma að fyrirtækið mitt, Ávöxtun, sem var fjármálafyrirtæki með alla þjónustu fyrir sparifjáreigendur, var sprengt upp nánast á einni nóttu og í kjölfarið var ég dreginn á asnaeyrunum í fimm ár og síðan sendur til fangelsisvistar á Kvíabryggju í ár. Þar með tók líf mitt óvænta stefnu því kerfið, sem stóð að öllum þessum málum, gerði mig að rithöfundi. Eftir að ég byrjaði að skrifa árið 2000 skar ég á öll tengsl við viðskiptalífið. Okkur Björgólfi Guðmundssyni hefur oft verið líkt saman í gegnum tíðina. Báðir lentum við í stórum gjaldþrotum en hann sneri aftur inn í viðskiptalífið og fólk sér hvernig komið er fyrir honum á meðan því finnst ég hafa orðið farsæll með mitt líf, sem vinjettuhöfundur," segir fagurkerinn og vinjettuhöfundurinn góðkunni Ármann Reynisson. Hann hefur gefið út sína tíundu bók í flokki vinjetta á einum áratug, Vinjettur X, þar sem höfundurinn kryfur síðasta áratug ásamt því að segja baráttusögur íslenskra alþýðuhetja, fjölskyldusögur, frá miðri nítjándu öld og fram til síðustu aldamóta. „Í raun má líta á sögurnar sem hálfgert uppgjör við góðærið og kreppuna, þetta sérkennilega tímabil sem einkenndist meðal annars af útrás, græðgisvæðingu og loks hruni og afleiðingum þess." Sögurnar segir Ármann nánast hafa skrifað sig sjálfar, meðal annars vegna reynslu sinnar af viðskiptalífinu. „Það vill nú svo til að ég hef óvenju mikla innsýn inn í íslenskan og erlendan viðskiptaheim af fyrri störfum mínum, sem ég notfæri mér, og meðan á útrásartímabilinu stóð skrifaði ég síðan heilt ritsafn, þannig að ég stóð utan við viðskiptalífið en sá töluvert í gegnum það," segir höfundurinn og bætir við að eigin reynsla af fjármálahruni hafi nýst honum vel til að skrifa um efnhagshrunið. Spurður hvort hann óttist ekki að það kunni að koma spánskt fyrir sjónir að maður sem hafi verið dæmdur fyrir fjárdrátt skuli gagnrýna útrásina, stjórnmálamenn og menn í viðskiptalífinu á prenti, segist Ármann hvergi vera banginn. „Alls ekki því ég er þarna að nýta mína dýrmætu reynslu í þessum útrásarsögum, í sumum set ég mig í spor útrásarvíkinga og bankastráka enda má segja að ég hafi verið langt á undan minni samtíð í þessum viðskiptum, og í öðrum er ég áhorfandi á fáránleika tilverunnar, rétt eins og ég var áhorfandi en ekki þátttakandi í bankahruninu." Ármann ætlar að fagna útgáfu bókarinnar með því að halda vinjettuhátíð í Gróttu 10. október milli 14 og 16. Hann segist vera sannfærður um að bókin eigi eftir að vekja umtal en kveðst ekki óttast gagnrýni. „Veistu, ég hef verið umdeildur maður alla tíð, allt frá því að ég kom heim frá London árið 1982 og stofnaði Ávöxtun, en þá voru Íslendingar áratugum á eftir í fjármálahugsun, og lenti svo í persónulegu hruni og sat inni, þannig að ég er ekki hræddur við gagnrýni. Ég geri eiginlega fastlega ráð fyrir að bókin verði umdeild eins og annað sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Út af fyrir sig er ég ánægður með að vera umdeildur fyrr og síðar, því sá sem er ekki umdeildur hefur náttúrlega ekkert að segja." roald@frettabladid.is
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira