Telur taflmennina íslenska 25. október 2010 18:48
Einn helsti sérfræðingur Breska þjóðminjasafnsins í skák og öðrum borðleikjum hefur skipt um skoðun og telur nú að taflmenn frá Ljóðhúsum séu íslensk smíði. Umsjónarmaður taflmannanna í breska þjóðminjasafninu varar við að of stórar ályktanir séu dregnar af málvísindalegum rökum, en útilokar ekki að mennirnir séu íslenskir að uppruna. Þessi menn eru mikil listasmíði. Íslendingar eru þekktir um allan heim fyrir handritin - en nú virðast erlendir fræðimenn viðurkenna að hér hafi ekki einungis verið mikil sagna og handritamenning á miðöldum, heldur líka útskurður. Málið snýst um níutíu og þrjá taflmenn, sem skornir voru úr rostungstönnum á tólftu öld. Þeir fundust í Suðureyjum á þarsíðustu öld, en erlendir fræðimenn hafa flestir talið að þeir séu norskir að uppruna. hafir orðið til í Niðarósi, eða Þrándheimi, en nýlegar hugmyndir benda til þess að þeir hafi verið búnir til hér. Doktor Irvin Finkel í British Museum, sem hér sést á tali við Guðmund G. Þórarinsson, sagði í samtali við fréttastofu í morgun, að hann væri nú sannfærður um að mennirnir séu íslenskir að uppruna - en almenn skoðun hefur verið önnur.Doktor Irvin Finkel, starfar í miðausturlandadeild Breska þjóðminjasafnins, en skák og aðrir borðleikir eru eitt hans helsta rannsóknarsvið og taflmennina frá Lewis þekkir hann vel. Flestir þeirra eru raunar geymdir þarna í safninu og milljónir manna skoða þá árlega. James Robinson, sagnfræðingur við safnið, er umsjónarmaður taflmannanna frá Lewis, eða Ljóðhúsum. „Ég útiloka ekki að taflmennirnir séu upprunnir á Íslandi. Hins vegar má ekki draga of miklar ályktanir af óbeinum sönnunargögnum," segir hann í viðtali við fréttastofu. Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur, telur að þeir séu héðan og bendir meðal annars á biskupinn. Hann líti út eins og kirkjulegur biskup, en það sé nýmæli. Jón G. Friðjónsson, prófessor í málfræði við Háskóla Íslands segir það óhrekjanlega staðreynd að orðið biskup í skákmerkingu sé eldra í íslensku máli en í ensku. Það muni um tvö hundruð árum á dæmum um orðið í íslenskum handritum og elsta dæmi um orðið í þessari merkingu í enskri tungu. Orðið hlaupari er notað um þennan taflmann í öðrum tungumálum á germönsku málsvæði.
Tengdar fréttir British Museum: Ekki útilokað að taflmennirnir séu íslenskir Talskona breska þjóðminjasafnsins, British Museum, útilokar ekki að taflmennirnir 93, sem skornir voru úr rostungstönnum á 12. öld, séu íslenskir. Flestir mannanna eru geymdir í safninu, en 11 þeirra á skosku safni. 13. september 2010 14:06 Taflmennirnir gætu verið grænlenskir Ekki er loku fyrir það skotið að taflmennirnir frá Ljóðhúsum í Suðureyjum, hafi verið búnir til á Grænlandi. Við greindum frá því í fréttum stöðvar 2 í gær, að Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur, telur að um níutíu taflmenn úr rostungstönnum hafi verið gerðir hérlendis í kringum árið 1200. Þeir fundust á eynni Ljóðhúsum, undan ströndum Skotlands, árið 1831. Flestir þeirra eru geymdir í British museum og þykja hinar mestu gersemar. 9. september 2010 13:23 Mest lesið Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Innlent Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Erlent Trump segir öfga-vinstrið bera ábyrgð á morðinu Erlent Quang Le stefnir Landsbankanum Innlent Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Innlent Vill draga Netanyahu fyrir dóm vegna árásarinnar í Doha Erlent 3,7 stiga skjálfti í Árnesi Innlent Líkamsárás og skartgripaþjófnaður Innlent Fékk milljón vegna afmælis kattarins Innlent Vilja styttu af Gunnari í Gunnarsbrekku Innlent Fleiri fréttir 3,7 stiga skjálfti í Árnesi Ákall um íslenskukennslu: „Oft var þörf en nú er nauðsyn“ Vilja styttu af Gunnari í Gunnarsbrekku Líkamsárás og skartgripaþjófnaður Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Quang Le stefnir Landsbankanum Fékk milljón vegna afmælis kattarins Ríkisstjórnin feli sig á bak við mistök þeirrar fyrri Um 100 þúsund lömbum slátrað hjá SS á Selfossi „Ísland á betra skilið“ Biður þingmenn að gæta orða sinna Stefnuræða forsætisráðherra á dagskrá í kvöld Óásættanlegt hversu margir falla fyrir eigin hendi Áhyggjuefni að menn missi stjórn á atburðarásinni Fundu fyrir jarðskjálfta í Hveragerði Kærður fyrir fjársvik fyrir að neita að borga Einbeittur brotavilji og óásættanlegur fjöldi sjálfsvíga Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Samfélagslega mikilvæg innviðafjárfesting að efla íslenska tungu Alþingi efnir til stefnuræðubingós Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Húsbrot á höfuðborgarsvæðinu: Oft sama fólkið sem brýst ítrekað inn í fleiri fjölbýlishús „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Segir gott að brugðist var við með valdi og NATO þurfi að sýna styrk Stilltu til friðar á óformlegum fundi í gær Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Hugsanlega verið að reyna á einingu NATO-ríkja Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Rússneskir drónar í pólskri lofthelgi og „sérstök“ ræða forseta Íslands Sjá meira
British Museum: Ekki útilokað að taflmennirnir séu íslenskir Talskona breska þjóðminjasafnsins, British Museum, útilokar ekki að taflmennirnir 93, sem skornir voru úr rostungstönnum á 12. öld, séu íslenskir. Flestir mannanna eru geymdir í safninu, en 11 þeirra á skosku safni. 13. september 2010 14:06
Taflmennirnir gætu verið grænlenskir Ekki er loku fyrir það skotið að taflmennirnir frá Ljóðhúsum í Suðureyjum, hafi verið búnir til á Grænlandi. Við greindum frá því í fréttum stöðvar 2 í gær, að Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur, telur að um níutíu taflmenn úr rostungstönnum hafi verið gerðir hérlendis í kringum árið 1200. Þeir fundust á eynni Ljóðhúsum, undan ströndum Skotlands, árið 1831. Flestir þeirra eru geymdir í British museum og þykja hinar mestu gersemar. 9. september 2010 13:23