Fjármálaráðherra vonast eftir hreyfingu á Icesave Heimir Már Pétursson skrifar 24. febrúar 2010 12:16
Talsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fullyrðir að Icesave deilan hafi ekki áhrif á endurskoðun sjóðsins á efnahagsáætlun landsins. Fjármögnun áætlunar sjóðsins sé hins vegar grundvallaratriði við endurskoðun áætlunarinnar. Hluti samninganefndar Íslands varðandi Icesave er komin til Lundúna. Fjármálaráðherra ræddi við bankamálaráðherra Bretlands í gær og vonast til að hreyfing komist á málin í dag eða næstu daga, eftir formlegt svar Íslendinga á mánudag. Í gagntilboði Breta og Hollendinga til Íslendinga fyrir helgi, var klikkt út með að það væri það besta sem þjóðirnar gætu boðið. Fréttastofa sendi fyrirspurn til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í gær um hvenær önnur endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands hjá sjóðnum kæmist á dagskrá hjá stjórn sjóðins og hvort Bretar og Hollendingar ynnu gegn því að áætlunin fengi framgang vegna Icesave málsins. En endurskoðunin átti að fara fram um miðjan janúar. Í svari sjóðsins segir að ekkert nýtt sé að frétta af málefnum Íslands hjá sjóðnum. Unnið sé með íslenskum stjórnvöldum að öllum þáttum áætlunarinnar vegna endurskoðunarinnar, þar með hvað varðar endurfjármögnun sparisjóðanna. Það mál nálgist niðurstöðu. Þá segir í svarinu að eins og AGS hafi marg ítrekað, sé niðurstaða um Icesave ekki skilyrði að hálfu sjóðsins. Hins vegar sé full fjármögnun áætlunarinnar mikilvæg eigi hún að ná árangri. En eins og kunnugt er halda Norðurlöndin aftur af lánum sínum á meðan Icesave deilan er óleyst og lán frá þeim eru hluti áætlunar AGS.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira