Kristjáni sagt upp störfum í Færeyjum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. september 2010 17:48 Kristján Guðmundsson. Mynd/Anton
Kristján Guðmundsson er hættur sem þjálfari færeyska liðsins HB frá Þórshöfn. Honum var sagt upp störfum í dag. „Formaður og einn stjórnarmanna félagsins komu heim til mín í dag og tilkynntu mér þetta," sagði Kristján í samtali við Vísi í dag. „Þeir telja að úrslitin hafi ekki verið nógu góð." HB tapaði í gær fyrir FC Suðuroy, 4-1, sem virðist hafa gert útslagið. „Úrslitin hafa verið upp og niður og í gær áttum við að klára leikinn eftir fyrsta hálftímann. Við komumst yfir eftir fimm mínútur og fengum nokkur góð færi til að skora eftir það." HB er þó í öðru sæti deildarinnar. „Liðið verður meistari ef ég held áfram með liðið. En þeir telja að það þurfi annan þjálfara til að landa titlinum," sagði Kristján sem segir að HB vanti sárlega framherja. „Við höfum skorað tíu mörkum færra en liðin í kringum okkur en erum samt með svipaðan stigafjölda. Það hefur því ekki verið stórt vandamál. Engu að síður hefði ég kannski átt að vera grimmari og biðja um að fá framherja fyrir mót eða þegar félagaskiptaglugginn var opinn." HB náði góðum árangri í Evrópukeppninni og vann til að mynda 1-0 sigur á Red Bull Salzburg frá Austurríki á heimavelli. „Forystumenn knattspyrnumála í Færeyjum voru himinlifandi yfir sigrinum því fyrir hann fengust 800 UEFA-stig. Ég er því ekki alveg að kaupa þessar útskýringar að gengið hafi ekki verið nógu gott." Kristján segir að dvölin í Færeyjum hafi reynst lærdómsrík. „Þetta er talsvert öðruvísi hér en ég hef kynnst annars staðar. Ég læt það liggja á milli hluta hvort það sé til hins betra eða verra. En aðstæður eru mun lakari en heima og hugsunarhátturinn er einfaldlega annar." „Það er einnig sérstakt að í tíu liða deild eru þrjú lið frá Þórshöfn og öll hafa þau rekið þjálfarann sinn á tímabilinu." Kristján á von á því að snúa aftur heim til Íslands. „Nú þarf ég að pakka niður og svo fer ég til fjölskyldunnar sem er heim á Íslandi."
Fótbolti Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Fleiri fréttir Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjá meira