Fótbolti

Internacional vann Copa Libertadores

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Bolivar lyftir bikarnum í nótt.
Bolivar lyftir bikarnum í nótt. AFP
Internacional tryggði sér sigur í Copa Libertadores í gærkvöldi eftir sigur á Guadalajara frá Mexíkó. Keppnin er eins konar Meistaradeild Suður-Ameríku.

Internacional vann fyrri leikinn 2-1 en Guadalajara jafnaði einvígið þegar það komst yfir í gær.

En heimamenn jöfnuðu, komust svo yfir og unnu að lokum 3-2 og samtals 5-3.

Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út hjá Brasilíumönnunum sem unnu sinn annan Copa Libertadores titil, hinn kom árið 2006.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×