Innlent

Íslenska sveitin komin til búða

Mynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Mynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Íslenska björgunarsveitin á Haítí er nú komin til búða á flugvellinum í höfuðborginni eftir erfiðan dag og fá meðlimir kærkomna hvíld eftir að hafa eingöngu sofið í fjórar til sex klukkustundir undanfarnar nætur.

Verkefni dagsins urðu fleiri en leit út fyrir fyrr í dag en sveitin leitaði í rústum hótels, banka, skóla, háskóla og húsa þar í kring, að fram kemur í fréttatilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Þar segir að verið sé að kalla allar björgunarsveitir til búða. „Ástæðan fyrir því hvað það er gert snemma er helst sú að mikil umferð er á götum Port au Prince og ekki talið öruggt að vera svo lengi við björgunarstörf að sveitir komist ekki til búða áður en myrkur skellur á."

Þá kemur fram í tilkynningunni að fjórir meðlimir sveitarinnar séu nú í könnunarflugi þar sem skoðuð eru möguleg verkefni morgundagsins og er athyglinni beint að suðurströnd eyjunnar.


Tengdar fréttir

Hafa ekki gefið upp vonina að finna fólk á lífi

Vonir eru bundnar við að fólk finnist enn á lífi í rústum húsa sem hrundu í jarðskjálftanum á Haítí í vikunni. Íslenska björgunarsveitin sem verið hefur að störfum í Port au Prince, höfuðborg landsins, síðustu tvo daga heldur áfram leit sinni í dag.

Íslendingarnir njóta verndar friðargæsluliða

Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin mun í dag vinna í rústum St. James hótelsins í Port au Prince á Haiti. Mun sveitin vinna að þessu verkefni með spænskri björgunarsveit með leitarhunda og undir vernd indverskra friðargæsluliða en talið er að það muni taka allan daginn, að fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Þar segir að líkurnar á því að finna einhvern á lífi séu því miður ekki miklar þar sem langt er síðan jarðskjálftinn reið yfir. Í hamförum sem þessum sé flestum bjargað á fyrstu 48 klukkutímunum.

Enn er vitað um fólk á lífi

Enn er vitað um fólk á lífi í rústum húsa á Haíti. Félagar í íslensku rústabjörgunarsveitinni unnu fram á nótt að íslenskum tíma með bandarískri sveit við leit á tveimur svæðum suður af flugvellinum í Port au Prince. Með þeim voru friðargæsluliðar frá Sameinuðu þjóðunum því mjög er óttast um öryggi hjálparstarfsmanna.

Mikil hræðsla greip um sig meðal íbúa Haítí

Mikil hræðsla greip um sig meðal íbúa Haítí í dag þegar sterkur eftirskjálfti reið yfir. Forsætisráðherra landsins telur að yfir 100 þúsund manns hafi látið lífið í jarðskjálftanum sem varð fyrr í vikunni.

Sjö milljónir í neyðaraðstoð á Haítí

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita um sjö milljónum íslenskra króna til neyðaraðstoðar Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna á Haítí. Þörf er á umfangsmikilli neyðar- og mannúðaraðstoð til handa öllum þeim mannfjölda, sem nú býr við mikla neyð, matarskort, lyfjaskort og skort á húsaskjóli í kjölfar jarðskjálftans á Haítí fyrr í vikunni.

Sýna björgunarsveitinni vinsemd

Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin er nú að rísa úr rekkju á Haítí en þar er klukkan að verða sjö að morgni. Íslendingarnir eru vel stemmdir og tilbúnir til að takast á við verkefni dagsins, að fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Ekki er þó enn ljóst hver þau eru.

Íslendingarnir heilir á húfi

Fregnir hafa borist af því að nokkuð stór eftirskjálfti hafi orðið á Haítí og segja erlendir miðlar frá því að hann hafi sett strik reikninginn í vinnu björgunarliðs. Haft hefur verið samband við íslensku alþjóðasveitina og hefur fengist staðfest að allir úr íslenska hópnum eru heilir á húfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Össur hitti aðstandendur björgunarmanna

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, heimsótti í dag höfuðstöðvar Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Skógarhlíð en þar hefur verið unnið allann sólarhringinn frá því jarðskjálftinn reið yfir Haítí. Þar hitti ráðherrann meðal annars aðstandendur björgunarmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×