Innlent

Um 600 skjálftar frá miðnætti

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Skjálftavirknin hefur verið stöðug síðan á miðnætti. Kort frá Veðurstofunni.
Skjálftavirknin hefur verið stöðug síðan á miðnætti. Kort frá Veðurstofunni.
Um 600 jarðskjálftar hafa mælst undir Eyjafjallajökli í sjálfvirkri jarðskjálftamælingu Veðurstofunnar frá því á miðnætti.

Bráðabirgðatölur benda til þess að 14 skjálftar séu yfir 2 á Richter en jarðskjálftafræðingur á Veðurstofunni segir að þær tölur geti breyst þegar farið verði yfir þær.

Skjálftarnir mældust allt upp í 1400 á sólarhring fyrr í vikunni. Skjálftavirknin minnkaði í gær en fór svo að aukast eftir miðnætti og hefur verið stöðug virkni síðan þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×