Fótbolti

Ljóst hverjir verða í 32 liða potti Evrópudeildarinnar á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
David Villa og Ever Banega fagna sigurmarki þess fyrrnefnda fyrir Valencia í kvöld.
David Villa og Ever Banega fagna sigurmarki þess fyrrnefnda fyrir Valencia í kvöld. Mynd/AFP
Riðlakeppni Evrópudeildarinnar lauk í kvöld og þar með er orðið endanlega ljóst hvaða 32 lið verða í pottinum þegar dregið verður í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar á morgun.

Everton tapaði 0-1 á heimavelli á móti BATE frá Aserbaídjan í kvöld en David Moyes, stjóri Everton gerði níu breytingar á liðinu sem náði 3-3 jafntefli á móti Chelsea um síðustu helgi.

Moyes leyfði ungum leikmönnum að spreyta sig þar sem varnarmennirnir Shane Duffy (17 ára), og Jake Bidwell (16), miðjumaðurinn Adam Forshaw (18) og framherjinn Kieran Agard (20) voru allir í byrjunarliði Everton í fyrsta sinn.

Celtic náði 3-3 jafntefli á móti Rapid Vín eftir að hafa lent 3-0 undir eftir aðeins nítján mínútna leik.

Valencia tryggði sér sigur í riðlinum og sæti meðal þeirra 32 bestu með því að vinna 2-1 útisigur á ítalska liðinu Genoa í spennandi leik. Genoa hefði með sigri komist áfram á kostnað spænska liðsins.

Úrslitin í Evrópudeildinni í kvöld:

Ajax-Anderlecht 1-3

Benfica-AEK Athens 2-1

Dinamo Zagreb-Timisoara 1-2

Everton-BATEL 0-1

Fenerbahce-Tiraspol 1-0

Genoa-Valencia 1-2

Hapoel Tel-Aviv-Hamburg 1-0

Lazio-Levski Sofia 0-1

Lille-Slavia Prag 3-1

Rapid Vín-Celtic 3-3

Steua Búkares-Twente 1-1

Villarreal-SV Salzburg 0-1



Liðin í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar:

Sigurvegarar riðlanna og bestu liðin úr Meistaradeildinni:

Anderlecht

Benfica

Fenerbahçe

Galatasaray

Hapoel Tel Aviv

Juventus

Marseille

PSV Eindhoven

Red Bull Salzburg

Roma

Shakhtar Donetsk

Sporting CP

Unirea Urziceni

Valencia

Werder Bremen

Wolfsburg

.... mæta ....

Liðin í 2. sæti riðlanna og liðin úr Meistaradeildinni með slakasta árangurinn:

Ajax

Athletic Bilbao

Atlético Madrid

Club Brugge

FC Kaupmannahöfn

Everton

Fulham

Hamburg

Hertha BSC

Lille

Liverpool

Panathinaikos

Rubin Kazan

Standard Liège

Twente

Villarreal

Lið sem voru saman í riðli geta ekki dregist saman og heldur ekki lið frá sama landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×