Voronin ætlar sér að spila mikið með Liverpool á tímabilinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. ágúst 2009 12:30 Andriy Voronin fagnar hér marki sem hann skoraði í æfingaleik með Liverpool á dögunum. Mynd/AFP
Úkraníumaðurinn Andriy Voronin er ekki kominn aftur til Liverpool til þess að sitja á bekknum. Voronin stóð sig frábærlega með Hertha Berlin í þýsku deildinni á síðasta tímabili eftir að hafa farið þangað á láni. Voronin kom til Liverpool frá Bayer Leverkusen árið 2007 en gekk illa á sínu fyrsta tímabili. Hann fékk hinsvegar sjálfstraustið aftur í Berlín þar sem að hann skoraði 11 mörk og gaf 8 stoðsendingar í 20 leikjum. „Ég talaði við Rafa Benitez áður en ég kom aftur og hann sagði mér að égþyrfti að leggja mikið á mig til þess að komast í Liverpool-liðið. Til þessa hef ég verið með í öllum undirbúningsleikjunum þrátt fyrir mikla samkeppni," sagði Voronin bjartsýnn við þýska blaðið Bild. „Ég er ekki hræddur við harða samkeppni. Ég er tilbúinn að berjast fyrri mínu sæti í liðinu og ég ætla mér ekki að sitja á bekknum," sagði Voronin en hann á að baki 28 leiki og 6 mörk með Liverpool í öllum keppnum. Voronin viðurkennir það þá að hann hefði alveg viljað vera áfram hjá Hertha Berlin en þýska félagið hafði ekki efni á að kaupa hann frá Liverpool. „Það var frábært fyrir minn feril að fara til Herthu og vonandi græði ég á því á þessu tímabili," sagði Voronin.
Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Enski boltinn „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Sjá meira