Margrét Lára: Við eigum heima hérna á EM Óskar Ófeigur Jónsson í Lahti skrifar 28. ágúst 2009 09:00 Margrét Lára Viðarsdóttir hefur ekki fengið mikið boltann í eða við teiginn. Mynd/Ossi Ahola
Margrét Lára Viðarsdóttir er búin að vera í mjög strangri gæslu á Evrópumótinu og hefur því fengið úr litlu að moða. Hún segir frammistöðu liðsins á móti Noregi hafa átt skilið stig. „Maður er gríðarlega svekktur. Það þekkja það allir sem setja sér há markmið og ef maður nær þeim ekki þá er maður skotinn svolítið niður á jörðina. Það var samt margt jákvætt hjá okkur og við megum ekki gleyma því," sagði Margrét Lára. „Maður skapar sína eigin heppni og óheppni í þessu en ég sé leikinn þannig að betra liðið tapaði í dag. Það er ekki spurt af því heldur er spurt af því hverjir skora mörkin. Það lið sem skorar fleiri mörk vinnur leikina og það er bara skemmtilega staðreyndin við fótbolta," sagði Margrét Lára. Hún er ánægð með keppnina þrátt fyrir að íslenska liðinu hafi ekki tekist að ná í stig. „Það er margt jákvætt í þessu og við eigum að vera stoltar af því að vera í þessu liði. Þetta er búin að vera frábær keppni. Við verðum reynslunni ríkari eftir hvern leik og við erum að bæta okkur," sagði Margrét Lára og hún horfir til framtíðar. „Það má heldur ekki gleyma því að við erum með ungt lið og fáa leikmenn sem eru eitthvað að fara að hugsa um að hætta á næstu árum. Framtíðin er björt hjá okkur og við munum koma reynslunni ríkari heim," sagði Margrét Lára. „Fólk kemur í leiki á móti okkur og heldur að við pökkum bara í vörn. Ég held að við höfum sýnt það í þessari keppni að við höfum mikið gott fram að færa. Við eigum heima hérna á EM," sagði Margrét Lára.
Mest lesið Tók tíuna af Messi og sló met Maradona Fótbolti Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Körfubolti Flugu inn á HM þrátt fyrir átta markalaus jafntefli Fótbolti Ofurtölvan telur Liverpool líklegast til að vinna Meistaradeildina Fótbolti Ómar Ingi fór áfram hamförum Handbolti Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Körfubolti „Þú veist að það er bara einn Siggi Hall“ Íslenski boltinn Álftanes mætir stórliði Benfica Körfubolti Einn þekktasti handknattleiksdómari heims látinn Sport Engin vandamál hjá Arnari Birki og félögum Handbolti Fleiri fréttir Tók tíuna af Messi og sló met Maradona Flugu inn á HM þrátt fyrir átta markalaus jafntefli Ofurtölvan telur Liverpool líklegast til að vinna Meistaradeildina „Gagnrýnið mig en ekki liðið“ „Þurftum að spila á móti dómurum, lögreglu og boltastrákum líka“ Coote ákærður fyrir að framleiða barnaníðsefni Stærsta lið Úkraínu samdi við aðdáanda Pútin Man. Utd er ekki eins lélegt og flestir halda „Þú veist að það er bara einn Siggi Hall“ Onana stóð sem steinn og ýtti áhorfanda „Vissi ekki að ég væri sá fyrsti“ Köstuðu kúk og hentu handsprengjum: „Allt sem suður-amerískur fótbolti á að standa fyrir“ Bólivía vann Brasilíu og fer í umspil álfanna Myndasyrpa: Borg ástarinnar stóð ekki undir nafni Breiðablik hafnaði tilboði í Ágúst Orra Pirraður Heimir: „Er þetta spurning?“ Haaland skoraði fimm í tíu marka sigri Noregs „Frammistaða sem við getum svo sannarlega byggt ofan á“ Arnar eftir tapið súra í París: „Hef þroskast svo mikið” Einkunnir Íslands: Andri Lucas bestur í grátlegu tapi í París „Þetta mark átti klárlega að fá að standa“ Fyrirliðinn um markið sem var dæmt af: „Finnst þetta galið“ Sársvekktur Andri Lucas: „Ég eiginlega veit ekki hvað hann dæmir á“ Uppgjörið: Frakkland - Ísland 2-1 | Grátlegt tap í París eftir hetjulega baráttu Endurkoman gegn Víkingum ekki nóg og Bröndby skiptir um þjálfara Englendingar skoruðu fimm í Serbíu Aserar náðu í mikilvægt stig gegn Úkraínu Lærisveinar Heimis fara illa af stað Byrjunarlið Íslands: Daníel byrjar og fimm manna vörn Svíar nötrandi og HM í hættu en starf þjálfarans ekki Sjá meira