Magnús Gylfason spáir í spilin fyrir leiki kvöldsins 14. maí 2009 11:54 Magnús spáir að KR muni fara fýluferð til Grindavíkur í kvöld
Annari umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu lýkur í kvöld með fimm leikjum. Vísir fékk Magnús Gylfason sérfræðing Stöðvar 2 til að spá í spilin fyrir leiki kvöldsins. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15 nema hvað leikur Fylkis og Keflavíkur hefst klukkan 20 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Þá verða Pepsimörkin á sínum stað klukkan 22:00. Áhugavert verður að sjá hvað stórliðin FH og Valur gera í kvöld eftir töp í fyrstu umferðinni og þá verða eflaust margir með annað augað á leiknum í Grindavík þar sem KR-ingar koma í heimsókn. En skoðum hvað Magnús hafði að segja um leikina í kvöld. 19:15 Valur - Fjölnir (Vodafonevöllurinn) "Ég hugsa að Valur vinni þennan leik 2-0. Valsmenn eru komnir á heimavöllinn eftir að hafa tapað á Fylkisvellinum og ég held að þeir verði bara að vinna í kvöld. Fjölnismenn sýndu það á KR-vellinum að þeir eru með ágætt lið, en ég held að Valsmenn séu of sterkir fyrir þá."19:15 FH - Fram (Kaplakrikavöllur) "Þarna er það sama uppi á teningnum og hjá Valsliðinu. Það var ákveðin brotlending fyrir FH að tapa fyrsta leik, enda hefur liðið ekki tapað fyrsta leik í mörg ár. FH hefur stundum gengið erfiðlega með Fram en ég held að þeir komi alveg ljóngrimmir á heimavöllinn í kvöld og vinni 2-0 sigur."19:15 Þróttur R. - Stjarnan (Valbjarnarvöllur) "Þessi leikur er dálítið spurningamerki. Stjarnan er á toppnum eftir góðan sigur í fyrstu umferðinni og byrjar vel eins og oft með lið sem spáð er falli. Ég spái því að þetta verði 1-1 jafntefli. Þetta verður barningur þar sem bæði lið vilja stig. Ég trúi því að Stjarnan nái að nýta sér stemminguna úr síðasta leik og ná jafntefli. Mér finnast Þróttararnir samt líklegri."19:15 Grindavík - KR (Grindavíkurvöllur) "Grindvíkingarnir hafa verið dálítið upp og ofan. Þeim var spáð slæmu gengi í fyrra en náðu fínum árangri, en í ár var þeim spáð ágætu gengi en byrjuðu á tapi. Ég held að Grindvíkingarnir taki sig saman í andlitinu og vinni 1-0 sigur þrátt fyrir að KR sé með ágætt lið."20:00 Fylkir - Keflavík (Fylkisvöllur) "Bæði þessi lið unnu góða sigra á heimavelli í fyrstu umferð. Þetta verður hörkuleikur sem fer 2-2. Fylkir kemur með svipaða stemmingu og var í síðasta leik og mikla baráttu eins og liðin hans Óla gera venjulega. Keflavík er hinsvegar með hörkugott byrjunarlið og ég held að þetta verði jafn og skemmtilegur leikur."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Fótbolti Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann „Þetta lítur bara illa út“ Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Uppgjörið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa og umdeilanleg atvik Uppgjör: Keflavík – ÍA | Slátrun á Suðurnesjunum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2 | Ótrúleg endurkoma og nýliðaþrenna Sjáðu Fram og Þór/KA hrista vel upp í fallbaráttunni í Bestu kvenna Beið spenntur eftir því að Amin færi út Sjáðu Stjörnusnakksmáltíð KR-inga og markajafntefli í Eyjum „Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ „Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ Sjáðu mörkin þegar Þór vann meistarana og Fram sótti sigur á Hlíðarenda „Fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti“ „Satt best að segja er mér drullusama“ Uppgjörið: Þór/KA - ÍBV 2-1 | Þriðji sigurinn í síðustu fjórum leikjum Uppgjörið: KR - Stjarnan 5-0 | Muldir mélinu smærra „Flengdir á beran bossann og þá þarf að skammast sín“ „Mér fannst þetta ekki víti“ „Ég þakkaði bara Guði“ „Erfitt að spila svona leiki á milli Evrópuleikja“ Uppgjörið: ÍBV - KA 2-2 | Fjörugt í Eyjum og sjö spjöld á loft Uppgjörið: Víkingur - Fram 1-2 | Upp úr fallsæti með þriðja sigrinum í röð Finnur til með leikmönnum: „Síðustu mánuðir verið erfiðir“ Sjá meira