29 ára gamall stuðningsmaður Arsenal í Kenýa í Afríku tók tapið gegn Manchester United í gær svo nærri sér að hann hengdi sig.
Suleiman Alfphonso Omondi horfði á leikinn með félögum sínum á bar í grennd við heimili sitt, en tók tapið mjög nærri sér eins og aðrir stuðningsmenn Arsenal og gekk grátandi á dyr þegar flautað var af.
Hann hefur líklega tekið tapið meira inn á sig en flestir, því lögregla fann hann hangandi utan á svölunum heima hjá sér í Arsenal treyjunni í morgun.