Innlent

Papeyjarsmyglið: Meintur höfuðpaur neitar sök

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hollendingurinn Peter Rabe neitar sök í málinu. Mynd/ Pjetur.
Hollendingurinn Peter Rabe neitar sök í málinu. Mynd/ Pjetur.

Hollendingurinn Peter Rabe, sem grunaður er um að hafa skipulagt smygl á um 109 kílóum af fíkniefnum til Íslands í apríl, neitaði sök í málinu við þingfestingu þess í morgun. Tveir aðrir sakborningar, þeir Rúnar Þór Róbertsson og Árni Hrafn Ásbjörnsson neita einnig sök. Jónas Árni Lúðvíksson, Halldór Hlíðar Bergmundsson og Pétur Kúld Pétursson játa allir aðild að málinu en segjast hafa talið að um innflutning á sterum hafi verið að ræða en ekki fíkniefnum. Aðalmeðferð í málinu fer fram þann 20. júlí næstkomandi.



Mennirnir eru ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið saman að innflutningi á samtals 55.116,65 g af amfetamíni, 53.889,65 g af kannabis og 9.432 e-töflum til Íslands, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin voru flutt áleiðis til Íslands frá Belgíu með skútunni Sirtaki og var slöngubát af gerðinni Valiant siglt til móts við hana. Bátarnir mættust á hafi úti þann 18. apríl innan við 30 sjómílur suð- austur af landinu og voru efnin þar flutt milli báta. Slöngubátnum var síðan siglt með efnin til Djúpavogs.


Tengdar fréttir

Papeyjarsmygl: Vilja skútumenn áfram í gæsluvarðhald

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, gerir fastlega ráð fyrir því að krafist verði áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir tveimur mönnum úr Papeyjarsmyglinu svokallaða.

Von á Sirtaki til hafnar innan tíðar

Gert er ráð fyrir að varðskipið Týr komi að höfn í Eskifirði með meinta fíkniefnasmyglara úr smyglskútunni Sirtaki klukkan átta nú í morgunsárið. Stýrimenn og hásetar af varðskipinu sigla skútunni og varðskipið fylgir eftir, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni.

Helmingur fíkniefnanna í Papeyjarmálinu var amfetamín

Rúmlega helmingur fíkniefnanna sem hald var lagt á í Papeyjarmálinu svokallaða í síðasta mánuði reyndist vera amfetamín, eða 55 kílógrömm. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þar kemur jafnframt fram að mikið hafi verið af marijúana, eða 34 kílógrömm og hassi, eða 19,5 kílógrömm. E-töflurnar voru rúmlega 9.400 talsins.

Smyglskútumenn úrskurðaðir í gæsluvarðhald á Egilsstöðum

Þremenningarnir sem handteknir voru um borð í skútunni Sirtaki um 65 sjómílum fyrir utan Færeyjar í fyrrakvöld eru nú á leið í Héraðsdóm Austurlands á Egilsstöðum. Þeir komu til hafnar á Eskifirði í morgun en voru í kjölfarið fluttir til Egilsstaða. Þar hafa þeir verið í yfirheyrslum og verða síðan færðir fyrir dómara sem tekur ákvörðun um gæsluvarðhald. Samkvæmt upplýsingum frá Héraðsdómi Austurlands er von á mönnunum upp úr klukkan 10:00.

Þrír í áframhaldandi gæsluvarðhaldi

Þrír karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 14. júlí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Þeir hafa allir kært úrskurðinn til Hæstaréttar. Mennirnir, sem eru á þrítugs- og fimmtugsaldri, voru handteknir í apríl um borð í skútunni SIRTAKI djúpt út af Suðausturlandi en þeir eru grunaðir um stórfelld fíkniefnabrot.

Papeyjarsmyglið: Skútumenn áfram í gæsluvarðhaldi

Jónas Árni Lúðvíksson og Pétur Kúld Pétursson hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 12. júní en þeir eru grunaðir um að hafa siglt á gúmmíbát út í Papey til móts við skútuna Sirtaki til þess að sækja rúm hundrað kíló af fíkniefnum um miðjan apríl.

Skútumennirnir komnir á Hraunið

Þremenningarnir sem handteknir voru um borð í skútunni SIRTAKI í fyrrakvöld eru nú komnir í loftið og lenda á Selfossi innan skamms. Þaðan verða þeir síðan fluttir í gæsluvarðhald á Litla-Hraun. Það er flugvél flugmálastjórnar sem flytur mennina.

Papeyjarsmyglið: Skútumenn í gæsluvarðhald til 12.maí

Rúnar Þór Róbertsson og Árni Hrafn Ásbjörnsson ásamt hollenskum karlmanni voru allir úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 12.maí næstkomandi í Héraðsdómi Austurlands fyrir stundu. Þremenningarnir voru handteknir í skútunni Sirtaki í fyrrakvöld en grunur leikur á að skútan hafi komið með rúm 100 kíló af fíkniefnum hingað til lands.

Enn verið að yfirheyra smyglskútumennina

Yfirheyrslur standa ennþá yfir mönnunum sem handteknir voru í smyglskútumálinu svokallaða í síðasta mánuði. Gæsluvarðhald yfir sex mönnum sem handteknir voru vegna málsins rennur út í byrjun næstu viku,

Papeyjarsmyglið: Þrír áfram í gæsluvarðhaldi

Þrír karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 9. júní og einn til 5. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þrír þeirra hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar.

Sirtaki komin til hafnar á Eskifirði

Smyglskútan Sirtaki lagðist að bryggju í Eskifirði rétt eftir klukkan átta í morgun. Þó nokkur viðbúnaður lögreglu er við höfnina og hefur henni verið lokað. Að sögn Sigurðar Ingólfssonar fréttaritara er varðskipið Týr lagst að bryggjunni og er skútan bundin við stjórnborða skipsins.

Smyglskútumenn áfram í gæsuvarðhaldi

Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir Rúnari Þór Róbertssyni, Árna Hrafni Ásbjörnssyni og hollenskum karlmanni sem handteknir voru á skútunni Sirtaki í síðasta mánuði.

Papeyjarsmyglið: Óskað eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi

Fíkniefnalögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir fjórum mönnum sem voru handteknir vegna Papeyjarsmyglsins svokallaða. Þeir hafa allir verið í varðhaldi frá því snemma í apríl en það rennur út í dag.

Hollendingurinn leigði skútuna á hálfa milljón

Dópsmyglararnir sem teknir voru nú um helgina staðgreiddu hálfa milljón króna fyrir tveggja vikna leigu á skútunni Sirtaki sem notuð var við smyglið. Þrír þeirra eru þessa stundina í Héraðsdómi Austurlands á Egilsstöðum þar sem þeir bíða þess að verða úrskurðaðir í gæsluvarðhald.

Smyglskútan leigð frá Belgíu - Myndir

Smyglskútan sem þrír menn voru handteknir á í gærkvöldi heitir Sirtaki og er fjörtíu fet að lengd. Skráður eigandi skútunnar er fyrirtækið Channel sailing sem leigir skútur frá Belgíu. Skútan er leigð út samkvæmt heimasíðu fyrirtæksins.

Ákæran í Papeyjarsmygli: Peter Rabe höfuðpaur

Ákæra á hendur sex mönnum sem handteknir voru fyrir að smygla 109 kílóum af eiturlyfjum til landsins í apríl, verður þingfest í fyrramálið. Hollendingurinn Peter Rabe er ákærður fyrir að skipuleggja innflutninginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×