Innlent

Árshátíð þingmanna slegin af

Árshátíð þingmanna hefur verið slegin af nú í kreppunni í sparnaðarskyni, ásamt með árshátíð starfsmanna Alþingis og móttökum ýmis konar. Við það sparast um átta milljónir króna. Allt bendir til að komist verði hjá uppsögnum starfsmanna Alþingis.

Sturla Böðvarsson forseti Alþingis lagði nýverið til að felldar yrðu niður í sparnaðarskyni hefðbundnar móttökur sem þingforseti stendur fyrir á vegum Alþingis. Þannig verður sú ævaforna venja að halda þingveislu í febrúar slegin af á þessu ári. Þingveislan er einskonar árshátíð þingmanna en hana sækja einnig makar þeirra, forseti Íslands og forsetafrú.

Veislan hefur undanfarin ár verið haldin á Hótel Sögu og er harla óvenjuleg miðað við önnur veisluhöld landsmanna því þar mega menn aðeins taka til máls í bundnu máli - aðeins forseti þings og alþingis mega mæla nokkur orð í óbundnu máli.

„Þingveislan er rómuð skemmtun og hápunktur á starfi þingmanna í amstri tilverunnar," segir Sturla. Hann kveðst munu sakna veislunnar að þessu sinni og vonar að hún verði tekin upp að nýju þegar betur árar.

Dýrasti liðurinn í veisluhöldum alþingis er hins vegar árshátíð starfsmanna alþingis sem verður líka slegin af á þessu ári, sem og móttaka fyrir heiðurslaunaþega alþingis, árleg móttaka fyrir sendiherra í Reykjavík. Þá verður dregið úr opinberum heimsóknum forseta alþingis til annarra þjóðþinga.

Alls er áætlað að spara um 8 milljónir króna með þessu móti. Sparað verður á fleiri sviðum í rekstri alþingis og að sögn Sturlu bendir allt til þess að ekki þurfi að segja neinum starfsmönnum þingsins upp störfum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×