Sigurður Ragnar: Ég held að Ísland og Noregur séu með álíka sterk lið Óskar Ófeigur Jónsson í Tampere skrifar 26. ágúst 2009 17:45 Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari. Mynd/ÓskarÓ
Sigurði Ragnari Eyjólfssyni, landsliðsþjálfara, tókst vel upp með að rífa stelpurnar okkar upp eftir tapið á móti Frökkum í fyrsta leik liðsins á EM og lokaundirbúningurinn fyrir Noregsleikinn gat því hafist í dag. Ísland mætir Noregi í Lahti á morgun. „Við erum búin að afskrifa Frakkaleikinn og næsti leikur er alltaf mikilvægastur. Við mætum Noregi á morgun í algjörum úrslitaleik. Stelpurnar eru komnar í fínt skap sýnist mér," sagði Sigurður Ragnar. „Við ætlum að einblína á okkur og aðeins að lagfæra hluti sem voru ekki í lagi hjá okkur á móti Frökkum. Það vantar betri varnarvinnslu. Æfingin í gær var bara til að ná upp góða skapinu og hrista úr okkur leikinn. Í dag förum við yfir nokkur taktískt atriði sem við ætlum að reyna að ná fram í leiknum á móti Noregi," sagði Sigurður Ragnar og bætir við: „Það var margt jákvætt í þessum leik á móti Frakklandi og við getum tekið það með okkur inn í Noregsleikinn. Þetta var ekki allt ömurlegt þótt að við höfum tapað. Ef þú tekur þessar vítaspyrnur í burtu þá hefði staðan verið 1-1 þannig að við horfum jákvætt á hlutina. Við tökum þetta jákvæða með okkur í næsta leik," sagði Sigurður Ragnar. Það hefur gengið á ýmsu hjá norska liðinu á þessu ári og liðið hefur verið allt annað en sannfærandi í mörgum leikjanna. „Þær byrjuðu árið ekki vel og það gekk ekki vel hjá þeim á Algarve. Þær hafa síðan verið að vinna sig upp og unnu Svíþjóð stuttu fyrir lokakeppnina. Þær voru líka lengi bara 1-0 undir á móti Þjóðverjum en þær hrundu við að fá á sig annað markið og Þjóðverjarnir gengu á lagið og gengu frá þeim í restina. Þýskaland er með ógnarsterkt lið," segir Sigurður Ragnar. Sigurður Ragnar er ekki á því að 3-1 sigurinn á Noregi í febrúar hafi verið jafn sannfærandi og tölurnar kannski hljóma."Við unnum þær í mars en það var mjög jafn leikur sem hefði getað farið á hvorn veginn sem var," sagði Sigurður Ragnar og hann veit að þetta verður spennandi leikur „Ég held að Ísland og Noregur séu með álíka sterk lið. Norðmenn eiga fullt af góðum leikmönnum en við eigum líka fullt af góðum leikmönnum. Þetta er spurning um hverjar standa sig á fimmtudaginn," sagði Sigurður Ragnar að lokum.
Mest lesið Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Fótbolti Kjartan Atli lætur af störfum Körfubolti Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Fótbolti Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Enski boltinn Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Körfubolti Fimmtugur og fúlskeggjaður Svíi stal senunni á HM Sport Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Handbolti Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Enski boltinn Fleiri fréttir Stöngin inn hjá Ásdísi skilaði sigri Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Þjálfari meistaranna á hálum ís Axel verður áfram hjá Aftureldingu 38 ára Jamie Vardy að skrifa söguna fyrir enska leikmenn á Ítalíu Launað ríkulega fyrir að koma Norðmönnum á HM Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH Sólin komin upp á ný hjá Selmu Sól eftir krefjandi ár Isak tæpur og Gakpo frá Freyr ekki hrifinn af „hrokafullum dómara“ Rooney var hótað lífláti eftir að hann fór til Man Utd Breytti um nafn til að „sýna þeim fingurinn“ „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ Saka FIFA um okurverð á miðum á HM næsta sumar „Liverpool hefði ekkert unnið ef það væri ekki fyrir Mo Salah“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Kærasta Haaland hefur fengið nóg Girti niður um liðsfélagann í markafagni Sjáðu mark Kristins frá miðju og hin sem skiluðu sextíu milljónum í kassann Freyr pirraður eftir rautt spjald á erfiðu kvöldi „Ekki fallegt en mjög sætt engu að síður“ „Að hitta var bara númer eitt, tvö og þrjú“ Sjá meira