Rak alla leikmennina útaf með rautt spjald Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. mars 2009 21:45 Rauða spjaldið fór 18 sinnum á loft á einu bretti. Mynd/AFP
Fótboltaleikirnir í Suður-Ameríku eru margir hverjir afar skrautlegir enda ástríðan og skapofsinn þar á bæ engu öðru lík. Nú síðast varð dómari leiks í Argentínu að grípa til afar róttækra aðferða þegar annað liðið lenti í slagsmálum við stuðningsmenn andstæðinganna. Lið Barracas Bolivar og General Lamadrid mættust þarna í argentínsku C-deildinni og staðan var 3-0 fyrir heimamenn í Barracas Bolivar þegar allt varð vitlaust á 60 mínútu leiksins. Þetta byrjaði allt þegar upp úr sauð á milli þriggja leikmanna General Lamadrid og stuðningsmanna Bolivar. Starfsmenn útiliðsins voru líka með í rifildinu sem breyttist fljótt í slagsmál og áður en menn vissu af var allt Bolivar-liðið komið til að verja félaga sína. Dómari leiksins greip til þess að gefa öllum leikmönnum og varamönnum General Lamadrid rauða spjaldið fyrir að stofna til slagsmála við áhorfendur. Hann gaf því 18 rauð spjöld á einu bretti. Það er ekki nóg með að dómarinn þurfti að sjálfsögðu að flauta leikinn af heldur þarf General Lamadrid liðið að nota varaliðið í næsta leik því allir 18 leikmenn þess eru komnir í eins leiks bann.
Fótbolti Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Íslenski boltinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Fleiri fréttir Haaland orðinn stærri en Manchester City Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Justin Bieber kemur fram í hálfleik á úrslitaleik HM Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Norska landsliðið flúði hótelið sitt Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Sjá meira