Redknapp vill Bellamy en selur ekki Keane Hjalti Þór Hreinsson skrifar 25. desember 2009 11:00 Nordicphotos/GettyImages
Robbie Keane verður ekki seldur frá Tottenham í janúar. Eitt ár er síðan Keane fór aftur til félagsins eftir misheppnaða dvöl hjá Liverpool en er ekki fastur byrjunarliðsmaður í liðinu, þrátt fyrir að bera fyrirliðabandið. Keane var sagður vera höfuðpaurinn í leynilega jólateiti leikmanna liðsins í Dublin á Írlandi. Redknapp sagðist vera ósáttur með að leikmenn gengu að baki honum og eftir viðræður við leikmenn samþykktu þeir allir að gefa pening til góðgerðarmála. Með öðrum orðum voru þeir sektaðir fyrir vikið. Keane var orðaður við Celtic nýverið. Hann hefur skorað sex mörk í deildinni, þar af fjögur í sama leiknum gegn Burnley. Redknapp segir þó að ekki komi til greina að selja Keane og hann verði áfram fyrirliði liðsins. Redknapp vill þó kaupa framherja í janúar, en Roman Pavlyuchenko verður að öllum líkindum seldur. Efstur á óskalistanum er Craig Bellamy. „Hann er góður leikmaður. Hann er leikmaður Manchester City. Ég er viss um að þeir vilji ekki selja hann. Ég reyndi að kaupa hann áður en hann fór þangað. Þetta er eins og að spyrja hvort ég vilji kaupa Wayne Rooney. Auðvitað vildi ég það, en ég er ekkert að fara að fá hann til félagsins, er það?"
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Fleiri fréttir Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Sjá meira