Magnús Gylfason spáir í spilin fyrir leiki kvöldsins 18. maí 2009 14:43 Fjölnismenn eru án stiga í deildinni eftir töp gegn KR og Val á útivelli
Þriðja umferðin í Pepsi-deild karla í knattspyrnu klárast í kvöld með fjórum leikjum. Vísir fékk sérfræðinginn Magnús Gylfason til að spá í spilin fyrir leiki kvöldsins. Leikir kvöldsins eru fyrir margar sakir áhugaverðir. Forvitnilegt verður að sjá hvernig Breiðablik og Fylki tekst að fylgja eftir sigrum í fyrstu tveimur leikjum sínum og þá verður mikið undir í Grafarvogi þar sem stigalaus lið Fjölnis og Grindavíkur leiða saman hesta sína. Magnús Gylfason spáir því að hart verði barist á öllum vígstöðvum í kvöld. Fjölnir-Grindavík kl. 19:15 "Hvorugu liðinu hefur tekist að ná sér í stig til þessa og þessi leikur er að mínu viti nokkuð spurningamerki. Ég ætla að spá því að þetta verði 1-1 jafntefli. Liðin eiga eflaust eftir að fara varlega inn í þennan leik. Fjölnismenn eru með heimavöllinn en mér finnst Grindavíkurliðið eiga meira inni. Ég hef mikla tilfinningu fyrir því að þetta verði jafntefli." Fram-Fylkir kl. 19:15 "Þetta er annar hörkuleikur. Ég ætla að spá Fram 1-0 sigri og að Fylkismenn komi aðeins niður á jörðina eftir góða byrjun. Þetta verður mjög jafn og spennandi leikur eins og líklega allir leikirnir í kvöld." Keflavík-Valur kl. 19:15 "Þessi viðureign fór 5-3 í fyrra og var einn skemmtilegasti leikur sumarsins. Ég á nú ekki von á að verði eins mörg mörk í kvöld en ég held að Keflavík vinni þennan leik 1-0. Þeir unnu FH heima og eru með góða stemmingu með sér á heimavelli." Breiðablik-FH kl. 20:00 (beint á Stöð 2 Sport) "Leikir þessara liða hafa alltaf verið mjög skemmtilegir og spennandi. Ég held samt að FH vinni þennan leik. Blikarnir hafa byrjað mótið vel, en FH vinnur þetta 2-0."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA FH - Víkingur R | Nýta þær sér mistök meistaranna? Þór/KA - Valur | Valskonur í færi á að koma sér úr fallsæti ÍBV - Þróttur | Geta lyft sér upp í þriðja sæti BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ Sjá meira