Ólína: Varnarleikurinn verður númer eitt, tvö og þrjú Óskar Ófeigur Jónsson í Tampere skrifar 24. ágúst 2009 14:30 Ólína með Margréti Láru Viðarsdóttur og Dóru Stefánsdóttir. Mynd/ÓskarÓ
Það mun reyna mikið á Ólínu Guðbjörgu Viðarsdóttur, vinstri bakvörð íslenska kvennalandsliðsins, á móti Frökkum í kvöld. Ólína fær væntanlega það hlutverk að reyna að stoppa Élodie Thomis, eldfljótan sóknarkantman Frakka sem hefur verið líkt við Thierry Henry. „Ef hún er í sömu stöðu og ég fæ að spila þá verður maður að dekka hana og reyna að pakka henni saman. Ég man vel eftir henni og er líka búin að horfa á leikinn aftur," sagði Ólína áður en Sigurður Ragnar hafði tilkynnt byrjunarliðið sitt. Thomis spilar í treyju númer 12 en hún er 23 ára gömul og spilar með frönsku meisturunum í Olympique Lyonnais. Ólína stóð sig vel á móti Thomis í síðasta leik þjóðanna en þar vildi hún fá meira út úr leiknum. „Við áttum fullt af færum í síðasta leik á móti þeim sem er bara gott veganesti inn í þennan leik því að við vitum að við getum sótt á þær. Ef þorum að halda boltanum og spila fótbolta þá erum við mjög góðar í því. Við þurfum að hafa trú á því frá byrjun," segir Ólína. Íslenska liðið ætlar ekki að spila neitt skotgrafafótbolta þótt að liðið hugsi mikið um varnarleikinn. „Við erum ekki að pakka í vörn og bomba fram. Við ætlum að reyna að spila mjög góðan og árangursríkan bolta. Það hefur gengið betur eftir því sem við höfum spilað fleiri leiki á móti þessum sterku þjóðum. Varnarleikurinn verður samt númer eitt, tvö og þrjú í þessum leikjum," segir Ólína. Ólína vinnur ófáa boltana og er einn baráttuglaðasti leikmaður liðsins. Hún segir að allir leikmenn íslenska liðsins þurfi að gefa allt í leikinn. „Það verður mikil barátta í loftinu og ég held að baráttuglaðara liðið vinni þetta. Við erum með stórt hjarta og erum komnar hingað til þess að skapa okkur nafn. Við erum ennþá litið á okkur sem litla liðið enda erum við að koma hingað í fyrsta skiptið. Við lítum ekki á okkur þannig, það er stór munur þar á og það eina sem skiptir máli fyrir okkur," segir Ólína.
Mest lesið Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Fótbolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Reikna með Kane en vita ekki hvenær Körfubolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Fleiri fréttir Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Systraþrenna og Ísland er skrefi nær HM: „Ég var smá stressuð“ Njarðvík - Tindastóll | Gestirnir koma heitir frá Evrópu Ronaldo í bann hjá Portúgal Systurnar saman í byrjunarliði Íslands „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Mourinho tekur upp hanskann fyrir Mbappe „Ef ég myndi segja allar þá myndi fólk halda að ég væri klikkuð“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Ungu strákarnir okkar slást við Grikki um sæti á EM Í tveggja leikja bann fyrir að kippa í hárið Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Sjá meira