Eins og ekkert hafi gerst Loftur Guttormsson skrifar 26. nóvember 2009 06:00 Opinber stjórnmálaumræða síðustu vikurnar um það hvernig bregðast skuli við kreppunni á Íslandi ber vitni um að sumir stjórnmálaforingjar eru ekki reiðubúnir að draga lærdóm af hrakföllum síðustu missera og taka til endurskoðunar þá stefnu sem flestum ber saman um að átti mikinn þátt í þeim. Í bakgrunni fjármálahrunsins er nýfrjálshyggjan. Hér var hún framkvæmd á óábyrgari hátt en dæmi munu finnast um í okkar heimshluta. Matadorar hins einkavædda bankakerfis fengu að leika lausum hala og létu stjórnast af glýju skjótfengins gróða. Til þess nutu þeir velþóknunar þeirra stjórnmálaafla, einkum Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, sem höfðu skapað þeim skilyrði til þess ábyrgðarlausa athæfis sem lýðum varð ljóst með hruninu. Þessi stjórnmálaöfl gáfu Landsvirkjun heimild til að vinna óbætanleg spjöll á íslenskri náttúru og veita álrisanum Alcoa starfsleyfi sem fékkst þó aðeins út á undanþágu frá alþjóðlegu samkomulagi um mengunartakmarkanir (Kyoto-bókuninni). Flestum er nú ljóst að virkjunarframkvæmdirnar við Kárahnjúka og bygging Alcoa-verksmiðjunnar áttu drjúgan þátt í að magna upp það ástand, með ofþenslu og hávaxtastefnu, sem endaði í hrunadansinum. Ætti reynslan af þessu framferði öllu ekki að kenna mönnum að fátt er háskalegra velfarnaði einnar þjóðar en stjórnvöld og fjárfestingarbankar sem í sameiningu láta skammtímasjónarmið ráða ferðinni?Úrræði „Kárahnjúkaflokkanna“Af yfirlýsingum forystumanna þeirra flokka („Kárahnjúkaflokkanna“), sem öðrum fremur kölluðu hrunið yfir Íslendinga, verður því miður ekki séð að þeir hafi dregið lærdóm af því og tamið sér ábyrgari stefnu. Valkosturinn, sem Sjálfstæðisflokkurinn teflir fram sem kreppuúrræði, er atvinnustefna sem hefur að þungamiðju nýtingu orkulinda (jarðvarma og fallvatna) í þágu áframhaldandi stóriðju. Þar eru efst á blaði tvær risastórar álverksmiðjur í Helguvík og á Bakka við Húsavík, auk stækkunar þeirrar sem fyrir er í Straumsvík. Formaður flokksins boðar að með slíkum framkvæmdum verði komist hjá því að auka skattaálögur á landsmenn til mótvægis við hinn gríðarlega halla ríkissjóðs. Skattastefnu ríkisstjórnarinnar hefur formaðurinn kallað „brjálaða“ leið. Hvað úrkosti í atvinnuuppbyggingu varðar, er svipað uppi á teningnum hjá varaformanni Framsóknar, Höskuldi Þórhallssyni (sjá grein hans í Fréttablaðinu 5. nóv. sl.). Svonefnda umhverfisvæna orku beri að nýta í þágu álvers á Bakka við Húsavík sem muni glæða atvinnulíf á Húsavík og öllu Norðurlandi. Ekki orð um það að varhugavert kunni að vera að halda áfram á þeirri braut sem atvinnulífi á Austurlandi var mörkuð með Alcoa-verksmiðjunni þar. Ekki verður komist hjá að minna á að Samfylkingin slóst í lið með álvæðingunni þegar hún greiddi götu Kárahnjúkavirkjunar á Alþingi og í borgarstjórn. Það veldur sérstökum áhyggjum að heyra nú Jóhönnu forsætisráðherra taka undir stóriðjukröfurnar sem helsta úrræði í atvinnumálum Íslendinga. Hvar er ábyrgðarkenndin?Þrennt vekur nú sérstaka athygli í málflutningi Kárahnjúkaflokkanna. Í fyrsta lagi er látið að því liggja að jarðhitasvæðin suðvestan- og norðaustanlands geti lagt fyrirhuguðum tveimur risaálverum til þá orku sem þau munu þurfa á að halda fullbyggð þannig að komist verði að mestu hjá því að grípa til vatnsaflsvirkjana í gamla stílnum. Hvað álverið í Helguvík áhrærir hefur þó Sigmundur Einarsson jarðfræðingur sýnt fram á að mikið vantar á hægt verði að virkja slíkt magn jarðvarma í náinni framtíð (sjá grein Sigmundar, www.smugan.is, 13. nóv.). Hvað um álverið á Bakka? Eru horfurnar eitthvað betri þar hvað það varðar að beisla nægilega varmaorku fyrir fullbyggt álver? Í öðru lagi – og nátengt hinu fyrrnefnda – er látið eins og virkjanleg jarðvarmaorka muni á næstunni ekki aðeins duga til handa risaálverunum tveimur og stækkuðu álveri í Straumsvík heldur skapi hún nú þegar skilyrði fyrir ýmsar aðrar atvinnuskapandi framkvæmdir eins og netþjónabú í Sandgerði og á Keflavíkurflugvelli. Það verður að teljast ábyrgðarlaust athæfi hjá stjórnmálaforingjum að gylla fyrir þjóðinni ný atvinnutækifæri á jafnfölskum forsendum. Eða hvernig skyldu þeir koma út ef brugðið væri á þá mælikvarða hinna nýja gilda sem nýafstaðinn þjóðfundur hefur boðað? Í þriðja lagi er ljóst að Kárahnjúkaflokkarnir skirrast ekki við að nota kreppuástandið, sem þeir bera höfuðábyrgð á, til þess að leiða kjósendur til fylgis við áframhaldandi álvæðingu landsins. Verði hún að veruleika munu allir helstu orkukostir landsins bundnir að miklu leyti einni atvinnugrein sem legði þá að líkindum til meirihlutann af öllu verðmæti vöruútflutnings frá landinu. Ef svo færi mundu ekki mörg þróunarlönd jafnast á við Ísland að efnahagslegri einhæfni. Loks blasir við að hrunið hefur orðið Kárahnjúkaflokkunum tilefni að kæfa í eigin röðum þann vott af umhyggju fyrir umhverfinu sem farið var að brydda á í málflutningi þeirra „fyrir hrun“. Áframhaldandi álvæðing er nú boðuð rétt eins og hún sé óviðkomandi þeim ógnum sem nú steðja að mannkyni, losun gróðurhúsalofttegunda og hlýnun loftslags. Málflutningurinn fyrir áframhaldandi álvæðingu endurómar hér þau skammtímasjónarmið sem réðu ferðinni hjá þessum sömu flokkum fyrir 2007. Þrátt fyrir hrunið er eins og ekkert hafi gerst. Höfundur er prófessor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Regnbogavottun – andleg valdbeiting? Sigfús Aðalsteinsson ,Ágústa Árnadóttir Skoðun Við viljum ekki Sæbrautarstokk í nýja nefnd Regína Ásvaldsdóttir Skoðun Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Jónsdóttir Skoðun Tímamót í uppbyggingarsögu Reykjavíkur Heiða Björg Hilmisdóttir Skoðun Eru heimgreiðslur verkfæri djöfulsins? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun Af hverju er verðbólga hjá okkur hærri en í nágrannalöndum? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Viðreisn stendur með Reykvíkingum - strax Björg Magnúsdóttir Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB: Hvað erum við að kjósa um? Valerio Gargiulo Skoðun Skoðun Skoðun Hvers vegna spyr RÚV ekki um loftslagsmálin? Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun „En það er ekkert að þessu barni“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Framtíðin er þeirra! Steinar Bragi Sigurjónsson skrifar Skoðun Að búa til vettvanga fyrir samveru Sigurrós Elddís Huldudóttir skrifar Skoðun Popúlískar staðreyndir eða hvað! Einar Gísli Gunnarsson skrifar Skoðun Frelsið til að eiga heimili Guðný María Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Regnbogavottun – andleg valdbeiting? Sigfús Aðalsteinsson ,Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Græna, græna byltingin Ómar H. Kristmundsson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í sókn Árni Rúnar Árnason skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB: Hvað erum við að kjósa um? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Það sem sveitastjórnir geta gert gegn kynbundnu ofbeldi Drífa Snædal skrifar Skoðun Af hverju er verðbólga hjá okkur hærri en í nágrannalöndum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Tímamót í uppbyggingarsögu Reykjavíkur Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Uppbygging íþróttamannvirkja á Akureyri - hugsum lengra Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Skoðun Skólinn á að rúma okkur öll Rakel Viggósdóttir ,Rósanna Andrésdóttir skrifar Skoðun Þurfum við nýtt kerfi í stað jafnlaunavottunar? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn stendur með Reykvíkingum - strax Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Eru heimgreiðslur verkfæri djöfulsins? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Byrjum á grunninum ekki þakinu Sigurlaug Vigdís Einarsdóttir skrifar Skoðun Brottflutningur bandarísks herliðs frá Evrópu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Geðheilbrigðisvandi, taktu númer…. Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég kýs með leikskólahjartanu Kristín Dýrfjörð skrifar Skoðun Fleiri fána! Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Við viljum ekki Sæbrautarstokk í nýja nefnd Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Þegar niðurstaðan kemur á undan greiningunni Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Kaupmaðurinn á horninu er svarið Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Kerfisbundinn ránsfengur: Hvernig OHF-væðingin breytti lýðveldinu í sjálfsafgreiðslustöð Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun
Skoðun Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Skoðun Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson skrifar
Skoðun Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Kerfisbundinn ránsfengur: Hvernig OHF-væðingin breytti lýðveldinu í sjálfsafgreiðslustöð Sigurður Sigurðsson skrifar
Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun