Íslenski boltinn

Umfjöllun: Fjölnismenn rændu Grindvíkinga í Grafarvogi

Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar
Gunnar Már Guðmundsson var hetja Fjölnismanna í kvöld.
Gunnar Már Guðmundsson var hetja Fjölnismanna í kvöld. Mynd/Daníel
Fjölnir vann 3-2 sigur á Grindavík á heimavelli sínum í Grafarvoginum eftir að hafa tvívegis lent undir í leiknum.

Fyrir leikinn voru bæði liðin án stiga og því gefið að það myndi breytast eftir leikinn. Milan Stefán Jankovic þjálfari Grindvíkinga gerði tvær breytingar á liði sínu frá 4-0 tapi gegn KR á heimavelli. Óli Baldur Bjarnason og Marko Valdimar Stefánsson duttu út fyrir Ray Anthony Jónsson og Sveinbjörn Jónasson.

Leikurinn byrjaði fjörlega og þegar aðeins sjö mínútur voru liðnar átti Sveinbjörn Jónasson skot í stöng eftir frábæra stungusendingu frá töframanninum Scott Ramsay. Á elleftu mínútu komst Gilles Mbang Ondo í dauðafæri eftir að hann hafði platað Gunnar Val Guðmundsson upp úr skónum. Skot Ondo var þó arfaslakt og átti Þórður Ingason ekki neinum vandræðum með að verja það. Bogi Rafn Einarsson fylgdi á eftir en varnarmenn Fjölnis komust í veg fyrir skot hans.

Aðeins mínútu síðar komst markahrókurinn Jónas Grani Garðarsson einn í gegn en fór illa að ráði sínu gegn Óskari Péturssyni í marki Grindvíkinga.

Á 15. mínútu átti Sveinbjörn Jónasson skalla að marki Fjölnismanna en Þórður varði vel.

Á 21. mínútu vildu Fjölnismenn fá dæmt víti á Zoran Stamenic þegar hann handlék knöttinn. Þorvaldur Árnason dómari leiksins taldi þó að Zoran hefði verið utan vítateigs og dæmdi því aukaspyrnu. Tómas Leifsson skaut framhjá úr aukaspyrnunni.

Eftir þetta róaðist leikurinn nokkuð þar til á 32. mínútu þegar Scott Ramsay átti sendingu fyrir mark Fjölnismanna þar sem Sveinbjörn Jónasson skallaði boltann í stöng. Boltinn barst út í teig þar sem Gilles Mbang Ondo var réttur maður á réttum stað og skoraði af stuttu færi.

Það tók Fjölnismenn ekki langan tíma að svara fyrir sig. Þeir fengu hornspyrnu sem Tómas Leifsson tók og hitti beint á kollinn á Geir Kristinssyni sem skallaði boltann í jörðina fyrir Jónas Grana Garðarsson sem skallaði hann í markið.

Restin af hálfleiknum var í rólegri kantinum og gengu liðin með eitt mark hvort til búningsherbergja.

Seinni hálfleikur var ekki nema fimm mínútna gamall þegar Sveinbjörn Jónasson hafði komið Grindvíkingum í 2-1. Grindvíkingar fengu þá hornspyrnu sem Scott Ramsay tók. Eftir nokkurt klafs barst boltinn til Sveinbjörns sem skoraði af stuttu færi.

Eftir það kom kafli þar sem bæði lið sköpuðu sér ágætis færi. Sveinbjörn komst til að mynda einn á móti Þórði sem varði vel í það skiptið. Á 76. mínútu dróg svo til tíðinda þegar Fjölnismenn áttu fyrirgjöf frá vinstri þar sem Gunnar Valur Gunnarsson stökk manna hæst og skallaði boltann í netið. Fjölnismenn þar með búnir að jafna.

Næstu mínútur voru einnig fremur tíðindalitlar en þó töluvert um hálffæri. Á 86. mínútu fengu Fjölnismenn vítaspyrnu þegar Aron Jóhannsson féll í teignum. Grindvíkingar voru allt annað en sáttir við þennan dóm Þorvaldar Árnasonar. Gunnar Már Guðmundsson fór á punktinn og skoraði af öryggi.

Engin almennileg færi litu dagsins ljós það sem eftir lifði leiks og því fyrsti sigur Fjölnismanna staðreynd.

Grindvíkingar áttu eilítið meira í leiknum en Fjölnismenn og sköpuðu sér hættulegri færi. Það má því segja að Fjölnismenn hafi verið heppnir með þennan sigur, en sigur er það engu að síður.

Fjölnir - Grindavík 3-2

0-1 Gilles Mbang Ondo (32.)

1-1 Jónas Grani Garðarsson (36.)

1-2 Sveinbjörn Jónasson (51.)

2-2 Gunnar Valur Guðmundsson (76.)

3-2 Gunnar Már Guðmundsson (86.)

Fjölnisvöllur. Áhorfendur: Óuppgefið.

Dómari: Þorvaldur Árnason (5)

Skot (á mark): 18-11 (8-9)

Varin skot: Þórður 9 - Óskar 8.

Horn: 5-6

Aukaspyrnur fengnar: 14-10

Rangstöður: 0-3

Fjölnir

Þórður Ingason 7

Gunnar Valur Gunnarsson 6

Vigfús Arnar Jósepsson 5

Illugi Þór Gunnarsson 5

(Hermann Aðalgeirsson 64.) 5

Ragnar Heimir Gunnarsson 5

Gunnar Már Guðmundsson 5

Magnús Ingi Einarsson 5

Aron Jóhannsson 5

Geir Kristinsson 6

Tómas Leifsson 6

Jónas Grani Garðarsson 5

(91. Guðmundur Karl Guðmundsson -)

Grindavík

Óskar Pétursson 7

Ray Anthony Jónsson 6

Zoran Stamenic 6

Eysteinn Hún Hauksson Kjerúlf 6

Jósef Kristinn Jósefsson 6

(Emil Daði Símonarson 81)

Orri Freyr Hjaltalín 7

Jóhann Helgason 6

Scott Ramsay 6

Bogi Rafn Einarsson 5

Sveinbjörn Jónasson 7 - maður leiksins

(60. Þórarinn Brynjar Kristjánsson 4)

Gilles Mbang Ondo 7

Leiknum var lýst beint á Vísi og má lesa lýsinguna hér fyrir neðan: Fjölnir - Grindavík.


Tengdar fréttir

Jankovic fékk rautt spjald í leikslok

Grindvíkingar voru afar ósáttir við Þorvald Árnason dómara í lok leiks þeirra gegn Fjölni í kvöld. Fyrirliðinn Orri Freyr Hjaltalín hafði á orði að dómarinn hefði dæmt á móti þeim „eins og hann fengi borgað fyrir það“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×