Enski boltinn

David James þarf að fara í aðgerð á öxl

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
David James, markvörður Portsmouth, gat bara horft á í gær.
David James, markvörður Portsmouth, gat bara horft á í gær. Mynd/AFP

David James, markvörður Portsmouth, var ekki með í 3-1 sigri Portsmouth á Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í gær og mun missa af komandi leikjum enska landsliðsins í undankeppni HM.

James þarf að fara í uppskurð á öxl á miðvikudaginn og missir því af leikjum Englands á móti Kasakhstan 6. júní og Andorra 10. júní. James hefur verið fyrsti kostur landsliðsþjálfarans Fabio Capello.

„Hann er verið að glíma við þessi sársaukafullu meiðsli í langan tíma og með því að setja hann í aðgerð strax þá getur hann náð sér fyrir næsta tímabil," sagði Paul Hart, stjóri Portsmouth.

James var búinn að spila allar mínútur í leikjum Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni fyrir leikinn á móti Sunderland í gær en í marki liðsins í gær var Asmir Begovic.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×