Lagt til að lágmarkslífeyrir verði 186 þúsund á mánuði 18. ágúst 2009 05:15 Meðal úrræða sem atvinnulausum skal bjóða eru ókeypis sundmiðar, aðgangur að listasöfnum og íþróttaviðburðum og ódýrari heilbrigðisþjónusta. fréttablaðið/vilhelm
Huga skal að „lífskjaratryggingu“, þannig að enginn fái lægri upphæð en lágmarksupphæð lífeyris til framfærslu, 186.000 krónur. Auka þarf fjárhagsaðstoð sveitarfélaga svo þetta geti orðið. Einnig ættu atvinnulausir að greiða það sama fyrir heilbrigðisþjónustu og aldraðir og öryrkjar greiða. Þeir ættu að fá ókeypis í sund, og frían aðgang að listasöfnum og íþróttaviðburðum. Svo segir í skýrslu sem nefnd um sálfélagsleg viðbrögð við kreppunni skilaði nýlega af sér til heilbrigðisráðherra. Ráðherrann, Ögmundur Jónasson, er ánægður með skýrsluna, sem miðar við reynslu Finna af síðustu kreppu þeirra. „Lærdómur þeirra var að þeir hefðu gengið of langt í að draga úr útgjöldum til velferðarmála og það hefði í sjálfu sér framlengt krísuna,“ segir Ögmundur. Skýrslan sé því brýning fyrir okkur um að gæta hagsmuna þeirra sem lakast standi. Spurður hvort farið verði eftir ábendingunum, segir hann: „Auðvitað eigum við að taka þessi varnaðarorð alvarlega og setja okkur að markmiði að hlíta þeim.“ Í skýrslunni segir að nauðsynlegt sé að nýta strax allar leiðir til að vinna gegn neikvæðum afleiðingum kreppunnar á heilsu og félagslega stöðu fólks, til að forðast heilsubrest og hamla þannig gegn auknum útgjöldum á sviði heilbrigðis- og félagsmála. „Íslendingar fá ekki annað tækifæri til að kanna hvort skynsamlegra hefði verið að bregðast öðruvísi við hér á landi eftir fimm ár. Það verður of seint,“ segir í niðurstöðum nefndarinnar. Í skýrslunni er lýst yfir ánægju með stofnun Velferðarvaktar, til að fylgjast með afleiðingum hrunsins á einstaklinga og fjölskyldur. Mikilvægt sé að tryggja sterka heilsugæslu, þótt minna fé sé til reiðu. Þá skal efla mæðra- og ungbarnavernd og setja á fót „virknimiðstöðvar“ þar sem fólk getur komið til að „halda festu í daglegu lífi“. Hún telur að finnsk stjórnvöld hafi í sinni kreppu vanmetið síðari „sálfélagsleg eftirköst“ hennar. Finnskir sérfræðingar bentu nefndinni á að það sé ekki aðeins mannúðlegt að grípa til slíkra aðgerða, það sé einnig ódýrara en að gera það ekki. Nefndin var skipuð af fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Fleiri fréttir Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Sjá meira