John Arne Riise skoraði beint úr aukaspyrnu í þriðja landsleiknum í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. september 2009 12:30 John Arne Riise fagnar marki sínu á móti Makedóníu í gær. Mynd/AFP
Norðmaðurinn John Arne Riise var enn á ný á þrumu-skotskónum í 2-1 sigri Norðmanna á Makedóníu í undankeppni HM í Osló í gær. Riise spilar sem vinstri bakvörður en það kom þó ekki í veg fyrir að hann yrði markahæsti leikmaður Norðmanna í undankeppninni. John Arne Riise skoraði markið sitt beint úr aukaspyrnu en þetta var þá þriðji landsleikurinn í röð sem hann skorar með þrumuskot úr aukaspyrnu. Riise skoraði einmitt beint úr aukaspyrnu á móti Íslendingum á Laugardalsvellinum á laugardaginn. Hann skoraði einnig beint úr aukaspyrnu í 4-0 sigri á Skotum. „Ég hef skipt um skó fyrir hvern leik og ég verð greinilega að halda áfram að gera það," sagði John Arne Riise í léttum tón eftir leikinn. Öll mörkin þrjú hafa komið í fyrri hálfleik, hann skoraði á 35. mínútu á móti Skotum, á 11.mínútu á móti Íslandi og á 26. mínútu á móti Makedóníu í gær. John Arne Riise var markahæsti maður níunda riðils ásamt Eiði Smári Guðjohnsen og Hollendingunum Klaas-Jan Huntelaar og Dirk Kuyt. Allir skoruðu þeir þrjú mörk.
Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Handbolti „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist „Svona lítur frábær ákvörðun út“ Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Sjá meira