Smith ætlar að vinna hjá Rangers án samnings Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. desember 2009 20:30 Walter Smith. Nordic Photos / Getty Images
Walter Smith ætlar að halda áfram að vinna hjá Rangers eftir að samningur hans við félagið rennur út í næsta mánuði. Rangers hefur átt í fjárhagsvandræðum að undanförnu og verið er að vinna að því að finna félaginu nýja eigendur. Martin Bain, framkvæmdarstjóri Rangers, staðfesti að Smith og tveir aðstoðarmenn hans ætli ekki að krefjast þess að fá nýjan samning til að auðvelda söluferlið. „Walter, Ally [McCoist] og Kenny [McDowell] hafa allir samþykkt að vinna áfram án samnings við félagið svo það þurfi ekki að skuldbinda sig við þjálfarateymi sem nýir eigendur vilja ef til vill ekki hafa undir sinni stjórn," sagði Bain. Ef þeir sem kaupa svo Rangers í framtíðinni hafa ekki áhuga á að hafa Smith og hans menn við stjórnvölinn þyrfti að borga þeim bætur ef samningum þeirra yrði sagt upp. „Við erum svo heppnir að þjálfarateymið okkar eru allir sannir stuðningsmenn Rangers," bætti Bain við. Rangers hefur ekki fengið nýjan leikmann til félagsins undanfarna átján mánuði ef frá er talinn lánsmaðurinn Jerome Rothen. Liðið er þegar fallið úr leik í Meistaradeild Evrópu en liðið mætir Sevilla í lokaleik sínum í keppninni á miðvikudaginn. Smith var áður þjálfari skoska landsliðsins áður en hann tók við Rangers en hann er ekki sagður hafa áhuga á því starfi nú.
Fótbolti Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ Sjá meira