Katrín: Ekki að vinna út á vellinum en búin að vinna stúkuna Óskar Ófeigur Jónsson í Lahti skrifar 28. ágúst 2009 11:00 Íslenska stuðningsliðið er búið að standa sig frábærlega vel á EM Mynd/ÓskarÓ
Katrín Jónsdóttir, fyrirliði íslenska liðsins, var eins og aðrir leikmenn liðsins svekkt með að hafa ekki fengið neitt út úr góðum leik liðsins á móti Noregi. „Mér fannst allir vera að leggja sig hundrað prósent fram og gefa allt sitt í þetta. Við náðum bara ekki að uppskera þessi mörk sem við þurftum. Ég veit ekki alveg af hverju það var. Við náðum ekki að skapa okkur nógu mörg hættuleg færi en við áttum þó nokkur í fyrri hálfleik. Þetta er því ótrúlegt svekkjandi," sagði Katrín Jónsdóttir eftir leikinn. „Þær voru ekki hættulegri en við í þessum leik. Við áttum meira skilið en 1-0 tap. Stundum er bara boltinn svona og þetta var stöngin út í dag, því miður," sagði Katrín sem segir sigurmarkið hafa komið á erfiðum tíma. "Tímasetningin var svo svekkjandi og að við skyldum ekki náð að halda út hálfleikinn," sagði Katrín. Hún vildi hrósa íslenskum áhorfendum sem stóðu sig einstaklega vel. „Við erum kannski ekki að vinna út á vellinum en við erum búin að vinna stúkuna. Ég verð að fá að hrósa áhorfendum sem eru búnir að leggja leið sína hingað og hafa stutt þvílíkt við bakið á okkur. Það er frábært að heyra þá syngja þjóðsönginn og ýmsa aðra söngva. Það er ekkert annað lið sem við höfum mætt í keppninni með jafngóða stuðning á bak við sig," sagði Katrín. Ísland mætir Þýskalandi í lokaleiknum á sunnudaginn. „Ég veit ekki hvort ég sé sú eina sem hefur mætt Þýskalandi eða hvort einhver annar leikmaður hefur gert það. Það verður bara ný áskorun og við ætlum að sýna þar að við eigum erindi í þessa keppni og viljum standa okkur þar," sagði Katrín að lokum.
Mest lesið „Þú veist að það er bara einn Siggi Hall“ Íslenski boltinn Coote ákærður fyrir að framleiða barnaníðsefni Enski boltinn Einn þekktasti handknattleiksdómari heims látinn Sport Man. Utd er ekki eins lélegt og flestir halda Enski boltinn Ómar Ingi fór áfram hamförum Handbolti Onana stóð sem steinn og ýtti áhorfanda Fótbolti Gamla merkið verður áfram á landsliðsbúningunum Handbolti Bólivía vann Brasilíu og fer í umspil álfanna Fótbolti Pirraður Heimir: „Er þetta spurning?“ Fótbolti „Vissi ekki að ég væri sá fyrsti“ Fótbolti Fleiri fréttir Tók tíuna af Messi og sló met Maradona Flugu inn á HM þrátt fyrir átta markalaus jafntefli Ofurtölvan telur Liverpool líklegast til að vinna Meistaradeildina „Gagnrýnið mig en ekki liðið“ „Þurftum að spila á móti dómurum, lögreglu og boltastrákum líka“ Coote ákærður fyrir að framleiða barnaníðsefni Stærsta lið Úkraínu samdi við aðdáanda Pútin Man. Utd er ekki eins lélegt og flestir halda „Þú veist að það er bara einn Siggi Hall“ Onana stóð sem steinn og ýtti áhorfanda „Vissi ekki að ég væri sá fyrsti“ Köstuðu kúk og hentu handsprengjum: „Allt sem suður-amerískur fótbolti á að standa fyrir“ Bólivía vann Brasilíu og fer í umspil álfanna Myndasyrpa: Borg ástarinnar stóð ekki undir nafni Breiðablik hafnaði tilboði í Ágúst Orra Pirraður Heimir: „Er þetta spurning?“ Haaland skoraði fimm í tíu marka sigri Noregs „Frammistaða sem við getum svo sannarlega byggt ofan á“ Arnar eftir tapið súra í París: „Hef þroskast svo mikið” Einkunnir Íslands: Andri Lucas bestur í grátlegu tapi í París „Þetta mark átti klárlega að fá að standa“ Fyrirliðinn um markið sem var dæmt af: „Finnst þetta galið“ Sársvekktur Andri Lucas: „Ég eiginlega veit ekki hvað hann dæmir á“ Uppgjörið: Frakkland - Ísland 2-1 | Grátlegt tap í París eftir hetjulega baráttu Endurkoman gegn Víkingum ekki nóg og Bröndby skiptir um þjálfara Englendingar skoruðu fimm í Serbíu Aserar náðu í mikilvægt stig gegn Úkraínu Lærisveinar Heimis fara illa af stað Byrjunarlið Íslands: Daníel byrjar og fimm manna vörn Svíar nötrandi og HM í hættu en starf þjálfarans ekki Sjá meira