Blikar fljúga frá Bakka til Eyja Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. maí 2009 14:59 Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks. Mynd/Anton
ÍBV leikur sinn fyrsta heimaleik í Pepsi-deild karla í kvöld og verður þá lið Breiðabliks í heimsókn. Þó nokkuð rok hefur verið á suðurlandi í dag en þó er enn flogið til Eyja. Blikar munu reyndar fljúga frá Bakka en liðið var á leið þangað þegar Vísir heyrði hljóðið í Ólafi Kristjánssyni, þjálfara liðsins. „Við komum örugglega niður aftur," sagði hann í gamansömum tón spurður hvort hann óttaðist nokkuð flugferðina. „En ég er nú yfirleitt ekki smeykur við að fljúga." Hann segir að leikurinn leggist vel í sig enda gekk vel síðast þegar hann fór með lið Blika til Eyja. „Þá var ég nýtekinn við liðinu og okkur tókst að ná í öll stigin þrjú. En það er alltaf gaman að fara til Eyja og ríkir tilhlökkun í hópnum fyrir leikinn." Breiðablik vann 2-1 sigur á Þrótti í fyrstu umferð deildarinnar og getur því í kvöld unnið sinn annan sigur í röð. ÍBV er þó enn stigalaust eftir að hafa tapað fyrir Fram í fyrstu umferðinni. „Það er fínt að vera búnir að landa sigri í fyrsta leik og við munum gera allt sem við getum til að landa öðrum sigri í kvöld." „En ÍBV er með hörkulið. Þeir eru með góða útlendinga og fína heimamenn. Ég sá liðið í tveimur leikjum í fyrra og þeir voru virkilega flottir í þeim." Blikar mæta með fullmannað lið til Eyja í kvöld þar sem enginn leikmaður á við meiðsli að stríða.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Glódís skoraði í stórsigri Bayern Fótbolti Curtis Jones farinn til Inter Enski boltinn Fleiri fréttir „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjá meira