Fótbolti

Emil fékk leikheimild

Fréttablaðið/Daníel

Emil Hallfreðsson kemur væntanlega við sögu hjá Barnsley þegar liðið mætir Leicester í 1. deildinni á Englandi á morgun. Emil fékk leikheimild með nýja félaginu sínu í dag.

Emil er á láni út tímabilið hjá Barnsley frá Reggina á Ítalíu en enska félagið hefur síðan forkaupsrétt á kantmanninum knáa. Emil gekk til liðs við Reggina í júlí árið 2007 og skrifaði þá undir fjögurra ára samning við ítalska félagið.

Barnsley veitir ekki af liðsstyrknum. Liðið er í neðsta sæti 1. deildarinnar eftir þrjá leiki með eitt stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×