Innlent

Lögreglumenn ræða við ríkið

Lögreglumenn telja kjör sín hafa versnað undanfarin ár og eru nú í kjaraviðræðum við ríkið.
fréttablaðið/anton
Lögreglumenn telja kjör sín hafa versnað undanfarin ár og eru nú í kjaraviðræðum við ríkið. fréttablaðið/anton

Kjaraviðræður hófust í gær á milli lögreglumanna og ríkisins hjá ríkissáttasemjara. Lögreglumenn felldu í síðustu viku kjarasamninga við ríkið með miklum meirihluta, yfir 90 prósent felldu samninginn.

Í yfirlýsingu sem Landssamband lögreglumanna sendi frá sér í kjölfar atkvæðagreiðslunnar var ástandið innan lögreglunnar harmað. Þá sagði að lögreglumenn veltu því nú fyrir sér hvoru megin línunnar þeir myndu standa, kæmi til nýrrar búsáhaldabyltingar. Lögreglumenn hafa ekki verkfallsrétt, en hafa rætt sín á milli um aðrar aðgerðir í kjarabaráttu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×