Jankovic: Það ber að refsa dómurum líka Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. maí 2009 19:00 Milan Stefán Jankovic, þjálfari í Grindavík. Mynd/Vilhelm
Milan Stefán Jankovic segir í samtali við Vísi að hann sé allt ánægður með þá meðferð sem dómarar fá hér á landi en hann hætti í dag sem aðalþjálfari Grindavíkur sem leikur í Pepsi-deild karla. Milan Stefán ákvað að hætta eftir leik Fjölnis og Grindavíkur á mánudagskvöldið. Fjölnir vann leikinn, 3-2, en sigurmarkið kom úr vítaspyrnu á lokamínútum leiksins. Eftir leikinn mótmælti Milan Stefán dómgæslu Þorvaldar Árnasonar með þeim afleiðingum að hann fékk að líta rauða spjaldið. Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ úrskurðaði hann í tveggja leikja bann í kjölfarið. „Þetta sem gerðist reyndist mér bara of mikið allt saman," sagði Milan Stefán. „Ég var reiður eftir leikinn og fékk refsingu fyrir mína framkomu. Það er allt í lagi með það. En dómarinn á líka að fá sína refsingu. Það gerist í öllum öðrum löndum heimsins að dómurum sé refsað fyrir slæma frammistöðu. Sumir fá ekki að dæma í 1-2 umferðir, eru settir á línuna eða á leik í neðri deildunum." „Þannig var það oft í mínu heimalandi, gömlu Júgóslavíu, þegar ég var að spila þar. Þannig á það að vera hér. Ég vil bara að eitt gangi yfir alla." „Við áttum að fá tvö víti í fyrri hálfleik í leiknum gegn Fjölni. Svo var dæmt víti á okkur og það var öllum ljóst að það var ekki vítaspyrna. Ég bara gat ekki haldið ró minni vegna þessa." „Á mínum sautján árum á Íslandi hef ég lengst af starfað sem þjálfari í einni eða annarri mynd. Nú að undanförnu hef ég verið í þessu í fullu starfi og svo í þessum eina leik getur dómarinn kostað okkur allt það starf sem við höfum unnið í allan vetur." Góðvinur Jankovic, Luka Kostic, mun taka við þjálfun Grindavíkur og mun sá fyrrnefndi starfa áfram sem aðstoðarmaður hans. „Við spiluðum saman í sex ár í Króatíu og hann hjálpaði mér að koma til Íslands árið 1992. Sú hugmynd að við myndum vinna saman vaknaði fyrr í vetur en varð ekki að veruleika fyrr en nú. Luka er frábær þjálfari og liðið er í góðum höndum."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Slóst eftir leik og var rekinn út af: „Viðbrögðin í leikslok voru hræðileg“ Fótbolti Þekkt hnefaleikakona látin aðeins 26 ára gömul Sport Tove nýtti tímann sinn á Íslandi til hins ítrasta Sport Messi felldi tár í leikslok: „Enginn draumaendir“ Fótbolti Þrettán ára drengur lést í fagnaðarlátum á Spáni Fótbolti Spánverjar heimsmeistarar Fótbolti Guardiola hafði rétt fyrir sér um Rodri Fótbolti Rooney um hálfleikssýninguna: „Þetta var drasl“ Fótbolti Strákarnir fengu silfur á EM Körfubolti Gætu misst bæði Messi og landsliðsþjálfarann sinn Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu Fram og Þór/KA hrista vel upp í fallbaráttunni í Bestu kvenna Beið spenntur eftir því að Amin færi út Sjáðu Stjörnusnakksmáltíð KR-inga og markajafntefli í Eyjum „Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ „Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ Sjáðu mörkin þegar Þór vann meistarana og Fram sótti sigur á Hlíðarenda „Fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti“ „Satt best að segja er mér drullusama“ Uppgjörið: Þór/KA - ÍBV 2-1 | Þriðji sigurinn í síðustu fjórum leikjum Uppgjörið: KR - Stjarnan 5-0 | Muldir mélinu smærra „Flengdir á beran bossann og þá þarf að skammast sín“ „Mér fannst þetta ekki víti“ „Ég þakkaði bara Guði“ „Erfitt að spila svona leiki á milli Evrópuleikja“ Uppgjörið: ÍBV - KA 2-2 | Fjörugt í Eyjum og sjö spjöld á loft Uppgjörið: Víkingur - Fram 1-2 | Upp úr fallsæti með þriðja sigrinum í röð Finnur til með leikmönnum: „Síðustu mánuðir verið erfiðir“ „Ég er bara í brjáluðu skapi“ Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga „Þurfum að læra að stýra spennustiginu á milli verkefna“ „Eina leiðin er upp“ Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Fékk sigur í fimmtugsafmælisgjöf Topplið Lengjudeildarinnar fær liðsstyrk frá Stjörnunni Stórsigur á Seltjarnarnesi en markalaust í Grindavík Viktor Nói lánaður til Njarðvíkur Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ „Það ruglaður að manni finnst maður alltaf bestur“ Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Sjá meira