Fótbolti

Allt um leiki dagsins: Frakkar í vandræðum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
William Gallas var heldur niðurlútur eftir að Frakkar gerðu jafntefli við Rúmeníu í kvöld.
William Gallas var heldur niðurlútur eftir að Frakkar gerðu jafntefli við Rúmeníu í kvöld. Nordic Photos / AFP
Fjölmargir leikir fóru fram í undankeppni HM 2010 í Evrópu í dag. Vísir tekur hér saman úrslit dagsins og veltir fyrir sér framhaldinu.

Helst bar til tíðinda að bæði Portúgal og Frakkland náðu aðeins jafntefli í sínum leikjum og minnkuðu því líkurnar á því að þessi lið komist í úrslitakeppni HM í Suður-Afríku sem hefst á næsta ári.

Skotar eru þó í draumlandi eftir sigur á Makedóníu í kvöld. Það skemmdi heldur ekki fyrir að Norðmenn náðu aðeins jafntefli gegn Íslandi í kvöld.

Einna athyglisverðast þykir að lið eins og Slóvakía og Norður-Írland eru í fínum málum í sínum riðlum.

1. riðill:



Danmörk - Portúgal 1-1


1-0 Nicklas Bendtner (42.)

1-1 Liedson (86.)

Ungverjaland - Svíþjóð 1-2

0-1 Olof Mellberg (8.)

1-1 Szabolcs Huszti, víti (79.)

1-2 Zlatan Ibrahimovic (94.)

Staðan: Danmörk 17 stig, Ungverjaland 13, Svíþjóð 12, Portúgal 10, Albanía 6 og Malta 1.

Danir eru í góðri stöðu og geta tryggt sér efsta sæti riðilsins á miðvikudagskvöldið með sigri á Albaníu. Svíar þyrftu þó að tapa fyrir Möltu sem er ólíklegt.

Danir gerðu 1-1 jafntefli við Portúgal í kvöld og síðarnefnda þjóðin í bullandi vandræðum. Allt útlit er fyrir að Cristiano Ronaldo og félagar komist ekki á HM þó svo að öll nótt sé ekki úti enn.

2. riðill:

Moldóva - Lúxemborg 0-0

Ísrael - Lettland 0-1

Sviss - Grikkland 2-0

Staðan
: Sviss 16 stig, Grikkland 13, Lettland 13, Ísrael 9, Lúxemborg 5 og Moldóva 2.

Spennan er mikil í riðlinum en sigur Sviss á Grikkjum í kvöld var afar mikilvægur. Lettar geta enn blandað sér í toppbaráttuna eftir góðan útisigur á Ísrael í kvöld.



3. riðill:


Pólland - Norður-Írland 1-1

Slóvakía - Tékkland 2-2

Staðan
: Slóvakía 16 stig, Norður-Írland 14*, Pólland 11, Slóvenía 11, Tékkland 9 og San Marino 0*.

*eftir átta leiki. Önnur lið hafa leikið sjö leiki.

Staðan í þessum riðli er með ólíkindum. Slóvakía og Norður-Írland standa best að vígi og Slóvakar geta tryggt sér efsta sæti riðilsins ef þeir vinna Norður-Íra á miðvikudaginn og leikur Slóveníu og Póllands lyktar með jafntefli.

Tékkar eru þó í afar slæmum málum eftir jafnteflið í kvöld og ná væntanlega ekki öðru sæti riðilsins. Pólverjar og Slóvenar halda enn í vonina.

4. riðill:



Aserbaídsjan - Finnland 1-2

Rússland - Liechtenstein 3-0

Staðan
: Þýskaland 19 stig, Rússland 18, Finnland 13, Wales 9, Aserbaídsjan 1 og Liechtenstein 1.

Fátt virðist koma í veg fyrir að Þýskaland og Rússland verða í efstu tveimur sætunum. Liðin mætast 10. október næstkomandi í Moskvu og verður það væntanlega úrslitaleikur um efsta sætið.

5. riðill:

Armenía - Bosnía 0-2

Tyrkland - Eistland 4-2

Spánn - Belgía 5-0


1-0 David Silva (41.)

2-0 David Villa (49.)

3-0 Gerard Pique (50.)

4-0 David Silva (68.)

5-0 David Villa (85.)

Staðan: Spánn 21 stig, Bosnía 15, Tyrkland 11, Belgía 7, Eistland 5 og Armenía 1.

Spánverjar unnu stórsigur á Belgum og geta komist á HM með sigri á Eistlandi á miðvikudaginn ef Tyrkland tapar ekki fyrir Bosníu á sama tíma.

En annars virðist það formsatriði fyrir Evrópumeistarana að klára þennan riðil.

6. riðill:

Úkraína - Andorra 5-0

Króatía - Hvíta-Rússland 1-0

Staðan
: England 21 stig, Króatía 17*, Úkraína 14, Hvíta-Rússland 9, Kasakstan 3 og Andorra 0*.

*eftir átta leiki, önnur lið hafa leikið sjö leiki.

Englendingar spiluðu ekki í kvöld en augu allra beinast að leik liðsins gegn Króatíu á miðvikudaginn. Sigri Englendingar eru þeir komnir inn á HM, svo einfalt er það.

7. riðill:

Austurríki - Færeyjar 3-1

Frakkland - Rúmenía 1-1


1-0 Thierry Henry (48.), 1-1 Julien Escude, sjálfsmark (56.)

Staðan: Serbía 18 stig, Frakkland 14, Austurríki 10, Litháen 9, Rúmenía 8 og Færeyjar 1.

Frakkar máttu ekki við því að gera jafntefli í kvöld. Nú eru Serbar í þeirri stöðu að sigur á Frökkum á heimavelli á miðvikudaginn þýðir að liðið er komið inn á HM. En þótt Frakkar vinni er líklegast að þeir þurfi að fara í umspil til að komast til Suður-Afríku.

8. riðill:



Búlgaría - Svartfjallaland 4-1

Georgía - Ítalía 0-2


0-1 Kakha Kaladze, sjálfsmark (57.)

0-2 Kakha Kaladze, sjálfsmark (67.)

Kýpur - Írland 1-2

Staðan
: Ítalía 17 stig, Írland 16*, Búlgaría 11, Kýpur 5, Svartfjallaland 4, Georgía 3.

Það ótrúlega við þennan riðil er að þrjú efstu liðin eru enn taplaus. Búlgarar hafa til að mynda gert fimm jafntefli í sjö leikjum. Ítalir standa best að vígi en þó er ekkert öruggt enn.

Kakha Kaladze skoraði bæði mörk Ítalíu í kvöld en hann er jú leikmaður Georgíu og verður væntanlega brotinn og beygður á Laugardalsvellinum á miðvikudag.

9. riðill:

Skotland - Makedónía 2-0

Ísland - Noregur 1-1


Staðan: Holland 21 stig, Skotland 10, Noregur 7, Makedónía 7 og Ísland 5.

Holland tryggði sig inn á HM á Laugardalsvellinum í vor og hefur verið með ótrúlega yfirburði í riðlinum. Jafntefli Norðmanna þýðir að Skotar eru í lykilstöðu í riðlinum.

Hins vegar þurfa Skotar að vinna Hollendinga á miðvikudaginn því það er hæpið að tíu eða ellefu stig duga til að komast í umspilið.

Af þeim níu liðum sem lenda í öðru sæti sinna riðla komast aðeins þau átta áfram. Eitt situr eftir - það með lakasta árangurinn.

Miðað við hvernig þessi riðill hefur þróast verður að telja einna líklegast að „níunda" liðið komi úr þessum riðli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×