Íslenski boltinn

Tómas í raðir Framara

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tómas ásamt Brynjari Jóhannessyni, framkvæmdastjóra Fram.
Tómas ásamt Brynjari Jóhannessyni, framkvæmdastjóra Fram. Mynd/fram.is

Tómas Leifsson gekk í dag í raðir Fram frá Fjölni. Tómas kemur til félagsins án greiðslu en hann var samningslaus.

Tómas er 24 ára gamall. Hann ólst upp í herbúðum FH en fór þaðan til Fjölnis þar sem hann lék 86 leiki og skoraði í þeim 29 mörk.

Tómas hefur verið með betri leikmönnum Fjölnis síðustu ár og þetta því mikill liðsstyrkur fyrir Fram en að sama skapi blóðtaka fyrir Fjölnismenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×