Ég á von á því að þessi ráðherradómur verði bæði upphafið og endirinn á mínum pólitíska ferli segir Gylfi Magnússon, verðandi viðskiptaráðherra.
Gylfi Magnússon, sem er dósent í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, segir að það hafi fyrst verið komið að máli við hann í gær. Hann vill lítið segja um hver helstu verkefni hans verða. Það fari eftir verkefnaskrá tilvonandi ríkisstjórnar en það blasi við að mörg erfið verkefni bíði í viðskiptaráðuneytinu.
Gylfi telur ekki raunsætt að ætla að breyta miklu fram að næstu kosningum, þá sérstaklega í ljósi þess að um minnihlutastjórn er að ræða. Sum verkefni þoli þó varla bið.
Gylfi fer í launalaust leyfi frá Háskóla Íslands á meðan hann gegnir stöðu viðskiptaráðherra. Hann stefnir ekki að frekari frama í pólitíkinni.
Innlent